Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júlí 2026 18:10 Stjörnumaðurinn Viktor Jónas Lúðvíksson var með 19 stig og 13 fráköst í leiknum í kvöld. fiba.basketball Íslenska tuttugu ára landslið karla í körfubolta vann þriggja stiga sigur á Portúgal, 75-72, í kvöld í æsispennandi toppslag síns riðils í B-deild U20 Evrópumótsins.
Íslensku strákarnir hafa þar með unnið alla fjóra leiki sína í riðlinum en bæði lið voru ósigruð fyrir leikinn. Sætið í átta liða úrslitunum er þó ekki alveg í höfn því Bosníumenn bíða í lokaleiknum og þeir gætu skilið íslensku strákana eftir. Ísland og Bosnía mætast í lokaumferðinni á morgun og þurfa Bosníumenn að vinna tíu stiga sigur til að koma í veg fyrir að íslenska liðið fari í átta liða úrslitin. Strákarnir þurfa því að tapa stórt til að sitja eftir. Viktor Jónas Lúðvíksson var með 19 stig og 13 fráköst í leiknum í kvöld, Birgir Leó Halldórsson skoraði 16 stig, Lars Erik Bragason var með 14 stig og Ásmundur Múli Ármannsson skoraði 10 stig, tók 6 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Magnús Dagur Svansson var svo með 9 stig og 12 fráköst. Íslenska liðið vann fyrsta leikhlutann 25-15 en Portúgalar svöruðu með því að vinna annan leikhlutann með tíu stigum, 27-17. Það var því jafnt í hálfleik. Íslenska liðið var 55-50 yfir þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir af þriðja leikhlutanum en þegar ein mínúta var eftir voru Portúgalar komnir sex stigum yfir, 61-55. Ellefu portúgölsk stig í röð á þremur mínútum og staðan gjörbreytt. Íslensku strákarnir létu það ekki slá sig út af laginu og lönduðu sigrinum á spennuþrungnum lokamínútum.
Landslið karla í körfubolta Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira