Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Jakob Bjarnar skrifar 15. júlí 2026 14:34 Ólafur vildi ekkert tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. innanríkisráðuneytið Ólafur E. Jóhannsson blaðamaður á Morgunblaðinu hefur verið kærður fyrir að hafa brotið siðareglur Blaðamannafélags Íslands. Kærandi er Bergsnös ehf. og Finnur Harðarson forsvarsmaður félagsins en gerð er krafa um að viðurkennt verði að Ólafur hafi gerst brotlegur við siðareglurnar.
Finnur og lögmaður hans, Hilmar Gunnarsson lögmaður hjá Mörkinni lögmannsstofu, telja Ólaf hafa þverbrotið siðareglurnar í umfjöllun sinni um væringar við Stóru-Laxá og flutt einhliða fréttir af þeim átökum. Fréttir til þess fallnar að gera lítið úr Finni Finnur segir í samtali við Vísi þetta jafnast á við mannorðsmorð. Ólafur er sagður endurflytja rangar og órökstuddar ásakanir landeigandans. Markmið fréttaflutningsins sé augljóslega að kasta rýrð á persónu Finns, gera lítið úr honum og lýsa honum sem brotamanni og þannig valda honum viðskiptalegu tjóni. Illdeilur hafa staðið undanfarin ár milli Finns og eigenda jarðanna Iðu I og Iðu II og keyrir nú um þverbak. Finnur Harðarson á veiðislóð. Hann telur Morgunblaðinu beitt gegn sér og hefur nú kært Ólaf E. Jóhannesson blaðamann á Morgunblaðinu fyrir einhliða fréttafluting af sínum málum í Stóru-Laxá.Facebook Í kærunni, sem Vísir hefur undir höndum, er Ólafur sagður hafa flutt einhliða fréttir sem eiga það sameiginlegt að fjallað er um kærendur með neikvæðum hætti. „Fréttirnar voru skrifaðar og birtar án þess að blaðamaður hafi haft samband við kærendur eða aðra aðila.“ Ólafur vildi ekkert tjá sig um kæruna og efni hennar þegar eftir því var leitað: „Ég vil ekkert tjá mig um þetta,“ segir Ólafur í örstuttu samtali við Vísi. Í kærunni, sem sjá má í heild sinni í meðfylgjandi skjölum, er rakið hvaða fréttir þetta eru sem um ræðir: „Vill rifta vegna vanefnda“ (Mbl. 6. júlí 2026), „Krefst uppsagnar leigusamnings“ (Mbl.is 6. júlí 2026), „Leifa framkvæmdir í trássi við eigendur“ (mbl.is 7. júlí 2026), „Krefjast opinberrar rannsóknar“ (Mbl. 8. júlí 2026), „Nálgunarbanns krafist“ (mbl.is 8. júlí 2026) og „Kærður til lögreglu fyrir akstur á gröfu“ (mbl.is 9. júlí 2026). Einhliða fréttaflutningur Finnur er veiðiréttarhafi í Stóru-Laxá og í kærunni er nefnt að fréttirnar séu einhliða, þar halli verulega á Finn og aldrei hafi Ólafur gert tilraun til að heyra hans hlið. Í kærunni kemur fram að samkvæmt 6. gr. siðareglna Blaðamannafélags Íslands þurfi blaðamaður að gera greinarmun á staðreyndum og skoðunum. „Blaðamaður skal jafnframt setja fram upplýsingar á heiðarlegan og sanngjarnan hátt samkvæmt bestu vitund hverju sinni, meðal annars með því að leita andstæðra sjónarmiða þegar við á“, sbr. 2. grein siðareglna BÍ. „Blaðamaður setur heldur ekki fram „órökstuddar ásakanir“.“ Í kærunni er vísað til úrskurðar Siðanefndar í máli nr. 2/2023 og fréttar undir fyrirsögninni „Sunnudalsá; veitt í óþökk landeiganda“ sem birtist á vef blaðsins. Þar komst siðanefnd BÍ að þeirri niðurstöðu að blaðamaðurinn hefði brotið gegn 2. og 3. gr. siðareglna BÍ. Tengd skjöl Kæra_til_siðanefndarPDF1.1MBSækja skjal
Fjölmiðlar Lax Stangveiði Jarða- og lóðamál Tengdar fréttir Allsvakalegt laxadráp á veiðisvæði Iðu Finnur Harðarson, umsjónarmaður Stóru Laxár, á í stökustu vandræðum með veiðimennskuna eins og hún er stunduð á Iðu I og Iðu II. Þar ríkir villta vestrið, að hans sögn. 8. nóvember 2023 09:13 Deila um vegslóða fyrir Hæstarétt Eigendur sumarbústaðalóða á jörðunum Iðu I og II við Stóru-Laxá í Bláskógabyggð hafa fengið leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar í deilu um vegslóða til réttarins. Málið er einn angi mikilla deilna landeigenda við leigutaka veiðiréttar í Stóru-Laxá. 17. febrúar 2026 11:25 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin Sjá meira
Allsvakalegt laxadráp á veiðisvæði Iðu Finnur Harðarson, umsjónarmaður Stóru Laxár, á í stökustu vandræðum með veiðimennskuna eins og hún er stunduð á Iðu I og Iðu II. Þar ríkir villta vestrið, að hans sögn. 8. nóvember 2023 09:13
Deila um vegslóða fyrir Hæstarétt Eigendur sumarbústaðalóða á jörðunum Iðu I og II við Stóru-Laxá í Bláskógabyggð hafa fengið leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar í deilu um vegslóða til réttarins. Málið er einn angi mikilla deilna landeigenda við leigutaka veiðiréttar í Stóru-Laxá. 17. febrúar 2026 11:25