Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júlí 2026 23:15 Lamine Yamal er hér búinn að fá spark og er um það bil að fiska vítaspyrnu í undanúrslitaleiknum á móti Frökkum. Getty/Shaun Botterill Þriðjudagskvöldið var frábært fyrir spænska undrabarnið Lamine Yamal en nú er komið í ljós að óprúttnir aðilar ætluðu að nýta sér fjarveru hans á heimsmeistaramótinu hinum megin við Atlantshafið.
Hinn nítján ára gamli Lamine Yamal gat glaðst yfir því á þriðjudagskvöld að hann og Spánn komust áfram í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í Bandaríkjunum en heima í Barcelona voru fréttirnar ekki jafn góðar. Samkvæmt fjölmiðlinum La Vanguardia reyndu tveir grímuklæddir menn að brjótast inn á heimili ofurstjörnunnar snemma á miðvikudagsmorgun. Einkaöryggisverðir Yamals komu þó auga á innbrotsþjófana þegar þeir voru á leið yfir vegginn að heimili fótboltamannsins og því hættu óboðnu gestirnir við áform sín og flúðu af svæðinu þegar þeir uppgötvuðu að komist hafði upp um þá. Katalónska lögreglan á svæðinu, Mossos d'Esquadra, var látin vita af atvikinu um klukkan tvö að nóttu til miðvikudags að íslenskum tíma, en þá fóru þeir að húsi Lamine Yamal og staðfestu innbrotstilraunina. Í sömu lúxusíbúðabyggðinni í Esplugues de Llobregat, eins og svæðið heitir, áttu sér stað að minnsta kosti tvö önnur innbrot á sama tíma. Lamine Yamal skoraði ekki í leiknum en fiskaði vítið sem gaf fyrsta markið og dró í sig athyglina þegar Spánverjar skoruðu seinna markið. Yamal kom svo boltanum í markið en það mark var dæmt af vegna rangstöðu.
HM 2026 í fótbolta Spánn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Sjá meira