Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar Áróra L Davíðsdóttir skrifar 16. júlí 2026 16:00 Myndin er frá því í ágúst 2018 þegar Morandi-brúin í Genóa hrundi. Getty Fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins sem rak Morandi-brúnna í Genóa fékk tólf ára fangelsisdóm vegna vanrækslu brúarinnar sem hrundi árið 2018. Fjörutíu og þrír létust í slysinu, einu versta samgönguslysi í sögu Ítalíu, en réttað var yfir fimmtíu og sjö manns í dag vegna málsins.
Þann 14. ágúst 2018 hrundi langur kafli Morandi-brúarinnar í Genóa á Ítalíu í kjölfar mikillar úrkomu og fjörutíu og þrír létu lífið. Saksóknarar kröfðust þess að fimmtíu og sjö manns yrðu dæmdir samanlagt í fjögur hundruð ára fangelsi fyrir að hafa vanrækt viðhald brúarinnar en hún var byggð árið 1967. Saksóknarar héldu því fram að viðhaldi á brúnni hefði ítrekað verið frestað og viðvaranir hunsaðar en allir fimmtíu og sjö neituðu sök í málinu segir í umfjöllun BBC. Giovanni Castellucci, fyrrverandi forstjóri ítalska vegagerðarfyrirtækisins Autostrade per l'Italia (Aspi), var dæmdur í tólf ára en hann afplánar þegar sex ára dóm fyrir umferðaslys frá árinu 2013. Annar háttsettur embættismaður Aspi, Michele Donferri Mitelli, var dæmdur í ellefu ára fangelsi. Alls voru þrjátíu og tveir sakfelldir vegna málsins. Meðal annarra sakborninga voru verkfræðingar viðhaldsfyrirtækis og fyrrverandi embættismenn samgönguráðuneytis. Fyrrverandi forstjóri viðhaldsfyrirtækisins SPEA var dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi og fyrrverandi yfirmaður samgönguráðuneytisins fékk fimm ára dóm. Í gær baðst núverandi forstjóri Aspi formlega afsökunar á slysinu fyrir hönd fyrirtækisins í fyrsta sinn. Hann sagði að „aðgerðir og ákvarðanir sumra“ hefðu skilið eftir sig „varanleg ör“.
Ítalía Mest lesið Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Dagný Ósk látin Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Innlent Fleiri fréttir Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Sjá meira