„Of mörg heimskuleg mistök“ Sindri Sverrisson skrifar 17. júlí 2026 09:01 Rory McIlroy átti erfiðan dag í gær en hélt sér þó inni í mótinu. Getty/Andrew Redington Rory McIlroy átti erfitt uppdráttar á fyrsta degi Opna breska meistaramótsins í golfi í gær og endaði sjö höggum á eftir efsta manni, Jackson Suber, eftir „heimskuleg mistök“.
Norður-Írinn McIlroy vann mótið árið 2014 og ætlaði sér að vinna í annað sinn, rétt eins og hann gerði þegar hann varði Masters-titilinn sinn í apríl. Honum gekk hins vegar afleitlega að fóta sig í gær, öfugt við Suber sem átti frábæran dag í sinni fyrstu ferð til Evrópu. McIlroy hefur samtals unnið sex risamót en hann lék á 72 höggum í gær, eða tveimur höggum yfir pari, og hefur verk að vinna þegar hann leggur af stað í hring tvö núna klukkan 9:09 að íslenskum tíma, á Sýn Sport. Hann fékk fjóra fugla en sex skolla, eftir að hafa til að mynda klikkað þrisvar á 120 sentímetra púttum, á holum 7-10, áður en hann fékk svo þrjá fugla og tvo skolla á par-5 holum á lokaþriðjungnum. Rory just drove the green on a 415-yard hole @TheOpen.📺 USApic.twitter.com/yGzsIWdA46— PGA TOUR (@PGATOUR) July 16, 2026 „Skollarnir tveir á par-5 holunum voru ekki frábærir og ég átti í vandræðum með að finna hraðann á flötunum á fyrstu tveimur holunum,“ sagði McIlroy sem ætti núna að hafa náð að venjast aðstæðum á Royal Birkdale-vellinum. Hann varð í 4. sæti þegar mótið fór þar fram árið 2017. „Mér fannst ég komast á svolítið skrið en ég gerði of mörg heimskuleg mistök. En alltaf þegar ég gerði heimskuleg mistök þá náði ég sem betur fer í fugl til að halda mér inni í þessu. Ég er ekki svo langt frá þessu. Vonandi fáum við betri aðstæður og flatirnar verða aðeins sléttari í morgunsárið,“ sagði McIlroy í gær.
Golf Opna breska Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira