Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Eiður Þór Árnason skrifar 17. júlí 2026 10:36 Hvalur 8 kemur með langreyði í Hvalfjörð í lok júni. Vísir/Vilhelm Hvalur hf. braut ekki gegn lögum um velferð dýra eða reglugerð um veiðar á langreyðum þegar langreyði var skotin með fjórum sprengiskutlum en það tók um 31 mínútu fyrir dýrið að drepast. Þetta er niðurstaða Matvælastofnunar (MAST) sem hefur lokið rannsókn á málinu. „
Rannsóknin sýnir að skipverjar Hvals 8 hafi gert allt sem í þeirra valdi stóð til að aflífa langreyðina eins hratt og mögulegt var. Þó svo að dauðatíminn sé langur þá hafi skipverjar brugðist við samkvæmt verklagi. Fyrsta skotið hæfir dýrið innan æskilegs marksvæðis, sem og tvö af þremur endurskotum,“ segir í tilkynningu frá MAST. Stofnunin hafi ekki gögn sem bendi til þess að skotmaður á Hvali 8 hefði getað skotið endurskoti fyrr en gert var, né gripið til annarra aðgerða sem hefðu stytt eða linað þjáningar dýrsins. Því sé það niðurstaða rannsóknar Matvælastofnunar að Hvalur hf. hafi ekki brotið gegn reglugerð um veiðar á langreyðum eða lögum um velferð dýra. Málinu telst lokið að hálfu stofnunarinnar. Gerðist 22. júní Samkvæmt MAST sem fer með eftirlit með hvalveiðum varð atvikið þann 22. júní síðastliðinn. Dýrið var fyrst skotið klukkan sex mínútur yfir fimm, aftur tíu mínútum síðar og þá tvisvar sinnum og svo aftur ellefu mínútum síðar í fjórða sinn. Hrönn Jörundsdóttir, forstjóri Matvælastofunar, sagði í samtali að við fréttastofu 1. júlí að veiðin væri til skoðunar. Tíminn sem hafi tekið að drepa langreyðina væri lengri „en kannski æskilegt er.“ „Lög um velferð dýra og reglugerð um veiðar á langreyðum gera kröfu um það að dýrið skal aflífað með þeim skemmsta hætti og valda sem minnstum sársauka,“ bætti hún við. Sambærilegt atvik átti sér stað sumarið 2023 og voru veiðar Hvals hf. þá stöðvaðar tímabundið á meðan að atvikið var rannsakað frekar og fyrirtækinu gefinn kostur á að bæta ráð sitt. Fréttin er í vinnslu.
Hvalir Hvalveiðar Matvælastofnun Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Innlent Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Erlent Fleiri fréttir Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Sjá meira