Hvað þarf til að verða sjúkraliði? Sandra B. Franks skrifar 17. júlí 2026 14:00 Nám í heilbrigðistengdum greinum hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum og áratugum. Kröfur um þekkingu, verklega færni, ábyrgð og fagmennsku hafa aukist í takt við sífellt flóknari heilbrigðisþjónustu. Það á ekki síður við um sjúkraliðanámið, sem hefur þróast og eflst verulega. Menntunin að baki starfinu er því mun umfangsmeiri en margir kunna að þekkja frá fyrri tíð. Stundum þarf þó bara eitt orð til að vekja umræðu um það sem við teljum okkur vita. Þegar sjúkraliðum var nýlega lýst sem ófaglærðum vakti það eðlilega sterk viðbrögð. Ummælin bárust hratt og víða, og gáfu tilefni til að staldra við og spyrja hvort við höfum sagt nægilega skýrt frá þeirri þróun sem orðið hefur - og þeirri menntun, hæfni og ábyrgð sem nú fylgja starfsheitinu sjúkraliði. Ummælin voru leiðrétt og beðist var afsökunar. Ég kann að meta það og fyrir mitt leyti er þeim hluta málsins lokið. Umræðan gefur engu að síður gott tilefni til að fræða, skýra hvernig námið hefur þróast og gera fagið sýnilegra. Menntun sem sameinar fræði, færni og ábyrgð Sjúkraliðanámið er 206 framhaldsskólaeiningar og tekur að jafnaði þrjú ár eða sex annir. Námslok eru á þriðja hæfniþrepi og námið skiptist í almennar greinar, heilbrigðisgreinar og sérgreinar sjúkraliðabrautar. Það sameinar bóklegt og verklegt nám í skóla við vinnustaðanám og starfsþjálfun á heilbrigðisstofnunum. Nemendur læra meðal annars hjúkrun, líffæra- og lífeðlisfræði, sjúkdómafræði, lyfjafræði, sýklafræði, næringarfræði, sálfræði, samskipti og siðfræði. Þeir læra jafnframt faglega skráningu í sjúkraskrá, þverfaglegt samstarf, forgangsröðun verkefna og að beita faglegri og gagnrýninni hugsun við fjölbreyttar aðstæður. Vinnustaðanám og starfsþjálfun eru umfangsmiklir og mikilvægir þættir námsins. Þar starfa nemendur undir handleiðslu á heilbrigðisstofnunum, setja sér fagleg markmið og fá hæfni sína og framvindu metna. Þannig læra þeir að færa fræðilega þekkingu yfir í raunverulegar aðstæður. Starfsnámið er því óaðskiljanlegur hluti fagmenntunarinnar. Tilgangur námsins er að undirbúa nemendur fyrir krefjandi störf við hjúkrun, endurhæfingu og forvarnir, bæði á heilbrigðisstofnunum og á heimilum fólks. Námið gerir ríkar kröfur um þekkingu og verklega færni, en ekki síður um samskiptahæfni, siðferðisvitund, sjálfstæði og ábyrgð. Að námi loknu er hægt að sækja um starfsleyfi hjá Embætti landlæknis. Starfsheitið sjúkraliði er lögverndað og aðeins þeir sem hafa gilt starfsleyfi mega bera starfsheitið og starfa sem sjúkraliðar. Sjúkraliðar bera faglega ábyrgð á eigin störfum við hjúkrun og umönnun í samræmi við menntun sína, þjálfun og færni. Náms- og starfsþróun sjúkraliða lýkur ekki við útskrift. Háskólinn á Akureyri býður starfandi sjúkraliðum 60 eininga fagnám til diplómaprófs á háskólastigi. Námið er skipulagt yfir tvö ár og þar er hægt að velja á milli samfélagsgeðhjúkrunar og öldrunar- og heimahjúkrunar. Með náminu dýpka sjúkraliðar klíníska þekkingu sína og styrkja hæfni sína til faglegra samskipta, fræðslu, stjórnunar og leiðtogastarfa. Að sjá fagið eins og það er Sjúkraliðar starfa á sjúkrahúsum og hjúkrunarheimilum, í heimahjúkrun, endurhæfingu, geðheilbrigðisþjónustu og víðar. Þeir veita daglega hjúkrun og umönnun, fylgjast með heilsufari og breytingum á líðan, sinna fjölbreyttum hjúkrunarverkum, skrá upplýsingar og taka þátt í endurhæfingu og líknandi meðferð. Verkefni þeirra ráðast af menntun, reynslu, viðbótarþjálfun og starfsvettvangi hvers og eins. Mörg verk sem virðast einföld við fyrstu sýn eru í raun hluti af markvissri og skipulagðri hjúkrun. Að fylgjast með næringu, hreyfigetu, húðástandi, lífsmörkum, verkjum eða breyttri hegðun getur skipt sköpum. Sjúkraliðar þurfa að geta greint breytingar, brugðist við þeim, skráð upplýsingar og komið upplýsingunum rétt og tímanlega á framfæri við aðra í heilbrigðisteyminu. Sýnileiki stéttarinnar snýst því ekki aðeins um viðurkenningu og virðingu, þótt hvort tveggja skipti máli. Hann snýst líka um gæði og öryggi þjónustunnar. Þegar þekking og hæfni sjúkraliða eru ekki sýnilegar er hætta á að þær séu ekki nýttar sem skyldi. Þá tapa ekki aðeins sjúkraliðarnir og vinnustaðirnir, heldur fyrst og fremst fólkið sem þarf á þjónustunni að halda. En sýnileiki snýst ekki aðeins um hvernig almenningur sér sjúkraliða. Menntun þeirra, hæfni og fagleg ábyrgð þurfa einnig að endurspeglast í starfslýsingum, verkefnaskiptingu og daglegu samstarfi innan heilbrigðiskerfisins. Þar er enn verk að vinna. Víða hafa störf og starfslýsingar ekki þróast í takt við menntunina og hæfni sjúkraliða er því ekki alltaf nýtt eins og best verður á kosið. Þegar við þekkjum menntunina skiljum við ábyrgðina. Þegar við skiljum ábyrgðina sjáum við virði stéttarinnar. Og þegar við sjáum virðið eigum við betri möguleika á að tryggja að sjúkraliðar verði áfram til staðar þegar við sjálf eða fólkið okkar þurfum á þeim að halda. Höfundur er formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sandra B. Franks Heilbrigðismál Skóla- og menntamál Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar