Forseti Ungverjalands segir af sér Sigurgeir Þorkelsson skrifar 18. júlí 2026 22:52 Forsetinn Sulyok er hér til vinstri og forsætisráðherran Magyar til hægri. Samtsett/Getty Forseti Ungverjalands, Tamás Sulyok, hefur samþykkt að segja af sér og mun forsetatíð hans taka enda á miðnætti á morgun. Ný ríkisstjórn Ungverjalands, undir forsæti Peters Magyar, hefur staðið fyrir hreinsunum innan stjórnkerfisins, auk breytinga á lögum og stjórnarskrá landsins frá miklum kosningasigri um miðjan apríl.
Fyrir kosningasigur Tisza-flokks Magyar hafði Fidesz-flokkur Viktors Orbán haldið um stjórnartaumana í sextán ár. Flokkurinn hafði á valdatíð sinni mótað margar stofnanir hins opinbera eftir eigin höfði og komið stuðningsfólki Orbán fyrir innan stjórnkerfisins. Ný ríkisstjórn Magyar hefur, frá því hún tók við völdum, leitast við að vinda ofan af stjórnkerfisbreytingum fyrri ríkisstjórnar og var markmið hennar að víkja Sulyok forseta úr embætti hluti af því. Ríkisstjórnin fékk forsetanum vikið úr embætti með því að samþykkja viðauka við stjórnarskrá. Lagabreytingin var samþykkt á mánudag og hafði forsetinn fimm daga til að undirrita lögin. Það gerði hann í dag og hefur þannig samþykkt að láta af völdum. Hefði hann ekki gert það hefði líklega komið upp stjórnlagakreppa í landinu. Í yfirlýsingu sakar Sulyok ríkisstjórnina um aðför gegn réttarríkinu. Viktor Orbán, fyrrum forsætisráðherra, sakar ríkisstjórnina um alræðistilburði og hvetur til mótmæla. Orbán hefur lítið sést opinberlega frá kosningaósigrinum og hefur neitað að taka sæti á þingi. Forsætisráðherrann Magyar hafði frá því að hann tók við embætti hvatt forsetann til að segja af sér.
Ungverjaland Tengdar fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Sextán ára valdatíð Viktors Orban í Ungverjalandi lauk um helgina þegar Tisza-flokkurinn með Péter Magyar í broddi fylkingar vann stórsigur í kosningum í landinu. Eiríkur Bergmann prófessor í stjórmálafræði og sérfræðingur í þróun þjóðernishyggju og pópúlisma í Evrópu segir að sigur Magyars hafi á endanum orðið enn stærri en búist hafði verið við og að um mikil tímamót sé að ræða. 13. apríl 2026 14:31 Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Sjá meira
Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Sextán ára valdatíð Viktors Orban í Ungverjalandi lauk um helgina þegar Tisza-flokkurinn með Péter Magyar í broddi fylkingar vann stórsigur í kosningum í landinu. Eiríkur Bergmann prófessor í stjórmálafræði og sérfræðingur í þróun þjóðernishyggju og pópúlisma í Evrópu segir að sigur Magyars hafi á endanum orðið enn stærri en búist hafði verið við og að um mikil tímamót sé að ræða. 13. apríl 2026 14:31