Steig á liggjandi mótherja en ekkert dæmt Andri Broddason skrifar 20. júlí 2026 22:03 Blikar voru gríðarlega ósáttir með dómgæslu leiksins. Guðmundur/Vísir FH og Breiðablik gerðu markalaust jafntefli í Bestu deild karla í kvöld en leikurinn var þó ekki laus við vafaatriði. Blikar setja stórt spurningamerki við dómgæslu leiksins.
Á 21. mínútu skoraði Ívar Örn Árnason fyrir Breiðablik með góðum skalla en Tómas Orri Róbertsson féll við í teignum og dómarinn dæmdi brot. Ágúst Orri Þorsteinsson ýtti lítillega við honum í teignum en það var nóg fyrir dómarann að dæma brot og Blikar voru verulega ósáttir. Klippa: Vafaatriði í leik FH og Breiðabliks Seinna í hálfleiknum fékk Breiðablik aukaspyrnu á stórhættulegum stað og ætlaði Hlynur Freyr Karlsson að skjóta á markið. Boltinn fór hins vegar í varnarvegg FH, nánar tiltekið í höndina á Jóhannesi Kristni Bjarnasyni sem er nýgenginn til FH frá Víking. Breiðablik bað skiljanlega um víti en ekkert var dæmt. Undir lok leiksins fóru bæði lið að reyna að sækja mörk og fékk FH gott færi til þess. Kjartan Kári Halldórsson kom með góða fyrirgjöf þar sem Kristján Flóki Finnbogason skallaði boltann að marki Breiðabliks en boltinn endaði í stönginni. Við skallann féll Ívar Örn Árnason hjá Breiðablik við og í staðinn fyrir að Kristján Flóki myndi labba fram hjá honum þá steig hann á brjóstkassann á Ívari Erni sem lá í teignum. Enginn af dómurunum sá atvikið og slapp Kristján Flóki með skrekkinn. Atvikin má sjá í spilaranum hér að ofan.
Besta deild karla Íslenski boltinn Breiðablik FH Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Fleiri fréttir Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Sjá meira