„Slæmur dagur dómaranna ekki afsökun fyrir okkur“ Hjörvar Ólafsson skrifar 20. júlí 2026 22:45 Ólafur Ingi Skúlason var að vonum pirraður eftir leik í kvöld. Vísir / Diego Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, var óánægður við bæði frammistöðu liðs síns og dómara leiksins þegar Blikar gerðu markalaust jafnteli á móti FH í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. „
Mér fannst við aldrei ná almennilegum tökum á þessum leik ef frá er talið síðasta korterið í fyrri hálfleik þar sem mér fannst við ná að tengja saman sendingar og þrýsta þeim aðeins niður á völlinn,“ sagið Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, eftir leik. Aðspurður um hvort það vanti bit í framlínu Breiðabliks eða hreinræktaðan framherja í liðið sagði Ólafur Ingi: „Að mínu mati vantar ekki breidd í framlínuna og við erum bara að glíma við meiðsli í framherjastöðunni þessa stundina. Við erum með stóran og breiðan leikmannahóp og erum ekki aktívt að leita að framherja. Ég hef hins vegar sagt það áður og það er þannig áfram að við erum með augun opin ef það er eitthvað í boði sem styrkir liðið klárlega.“ „Við skorum löglegt mark og eigum svo að fá vítaspyrnu. Svo stígur Kristján Flóki ofan á Ívar Örn. Því miður þá sáu dómararnir þau atvik eða mátu þau á annan hátt en ég. Það er vissulega svekkjandi en ekkert við því að að gera. Þeir eiga slakan leik í dag og það getur gerst hjá öllum,“ sagði Ólafur um umdeilanleg atvik í leiknum sem hölluðu að hans mati á Blikum. „Það er hins vegar engin afsökun fyrir úrslitunum. Við vorum einfaldlega ekki nógu góðir í þessum leik og hefðum þurft að gera meira til þess að ná í sigur. Við vorum ekki nógu góðir í nógu langan tíma til þess að innbyrða sigurinn sem við ætluðum okkur að sjálfsögðu,“ sagði hann.
Íslenski boltinn Besta deild karla Breiðablik Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport Uppgjörið: FH - Stjarnan | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Fleiri fréttir Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Sjá meira