„Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Eiður Þór Árnason skrifar 23. júlí 2026 18:54 Guðlaugur Þór bíður enn eftir svörum. Vísir/Ívar Fannar Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, kallar eftir skýrum svörum frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra varðandi samtöl hennar við Hollendinga um mögulega undanþágu frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.
Þá gerir hann athugasemd við að ráðherrann hafi ekki strax leiðrétt rangfærslu um samskipti hennar við forsætisráðherra Hollands. Alþjóðastjórnmálafræðingur telur að Íslendingar gætu áfram veitt sama hlutfall þeirra fiskistofna sem þeir nýti í dag ef Ísland þyrfti að undirgangast sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna. Guðlaugur Þór fjallar í aðsendri grein um þá atburðarás sem hófst þegar Rob Jetten, forsætisráðherra Hollands, sagði í hollenska þinginu að Ísland yrði að lúta sameiginlegri stefnu Evrópusambandsins í sjávarútvegsmálum komi til inngöngu. Þorgerður Katrín hefur sagt að ef gengið yrði til viðræðna myndu íslensk stjórnvöld fara fram á að fá undanþágu frá stefnunni og það komi ekki til greina að veita afslátt af þeirri kröfu. Eftir að greint var frá ummælum hollenska forsætisráðherrans sagði Þorgerður Katrín að hans yfirlýsing væri „ekki í samræmi við mín samtöl, meðal annars við Hollendinga og mína kollega.“ Í fyrstu var ranglega fullyrt að utanríkisráðherra hefði rætt mögulega undanþágu Íslands við forsætisráðherra Hollands. Fréttin var síðar leiðrétt og tekið fram að hið rétta væri að Þorgerður Katrín sagðist einungis hafa átt samtöl við ónafngreinda Hollendinga og aðra kollega sína í Evrópu. Siðareglur kveði á um að rangfærslur séu skjótt leiðréttar Guðlaugur Þór setur spurningamerki við að meira en vika hafi liðið áður en ráðherrann gerði athugasemd við þá fullyrðingu að hún hafi rætt málið við hollenska forsætisráðherrann. „Utanríkisráðherra brást ókvæða við fréttum af svörum hollenska forsætisráðherrans og þann 9. júlí mótmælti hún orðum hans. Af þeim fréttum mátti ráða að forsætisráðherra Hollands hefði sagt eitthvað allt annað við hana, en heilum 11 dögum seinna - eftir mikla umræðu í þjóðfélaginu - hélt hún því fram að rangt hefði verið eftir henni haft,“ skrifar Guðlaugur í aðsendri grein á Vísi. „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum en það er í meira lagi sérstakt að ráðherra leiðrétti ekki fréttina fyrr en löngu seinna af mörgum ástæðum, ekki síst vegna þess að það stendur í siðareglum ráðherra að; ,,Ráðherra hefur frumkvæði að því að leiðrétta, eins fljótt og auðið er, rangar eða villandi upplýsingar, sem og hvers kyns misskilning er varðar málefni sem heyrir undir ráðherra.““ Guðlaugur bætir við að utanríkisráðherra verði að svara því hvort Ísland yrði aðili að sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni eða ekki. „Er ráðherrann að halda því fram að kollegar eða einhverjir Hollendingar (Hollendingar eru 18,1 milljón.) hafi lofað því að við værum ekki aðilar að sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni? Er ríkisstjórnin/ráðherra telur að við verðum ekki aðilar að sameiginlegu stefnunni þá á þjóðin á rétt á að vita; hvort að það var gert, hverjir lofuðu, og í hvaða umboði.“ Utanríkisráðherra sagði í samtali við fréttastofu í dag að ef hún ætti að elta allt sem ranglega væri haft eftir henni gerði hún lítið annað. Þess vegna hafi misskilningur í tveggja vikna gamalli frétt um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB ekki verið leiðréttur fyrr en í gær. Aflaheimildir byggi á veiðireynslu á svæðinu Í sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins er kveðið á um að úthlutun aflaheimilda til einstakra aðildarríkja skuli gerð á grundvelli reglunnar um hlutfallslegan stöðugleika. Reglan um hlutfallslegan stöðugleika miðar að því að úthluta aflaheimildum samkvæmt þeirri veiðireynslu sem fiskiskip aðildarríkja höfðu á árunum 1973 til 1978. Þetta kemur fram í svargrein Þorvarðar Kjerulfs Sigurjónssonar alþjóðastjórnmálafræðings á Evrópuvef Háskóla Íslands. „Reglan um hlutfallslegan stöðugleika yrði íslenskum útgerðum að öllum líkindum hagstæð þar sem veiðireynsla Íslendinga er mikil og aðliggjandi strandir og landið í heild sinni mjög háð sjávarútvegi. Erfitt er að spá fyrir um niðurstöður samninga Íslands og ESB en talið er að reglan gæti tryggt Íslendingum áfram sama hlutfall úr þeim fiskistofnum sem þeir veiða nú, þar sem Íslendingar einir hafa veiðireynslu innan 200 mílna efnahagslögsögu Íslands á undanförnum áratugum,“ skrifar Þorvarður jafnframt. Ítarlegar umræður fóru fram um Evrópusambandið og komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands í Pallborðinu á Vísi í dag. Fréttin hefur verið uppfærð.
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjávarútvegur Holland Tengdar fréttir Hart tekist á um ESB Eins og lýðum má ljóst vera ganga Íslendingar að kjörborðinu þann 29. ágúst næstkomandi til að taka afstöðu til þess hvort stjórnvöld eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Málið er afar umdeilt en menn virðast ekki einu sinni geta komið sér saman um það hvort um eiginlegar samningaviðræður sé að ræða. 23. júlí 2026 16:26 Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Vegna töluverðrar umræðu og umfjöllunar um samskipti Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra við erlenda embættismenn og kjörna fulltrúa ber að leiðrétta frétt sem fréttastofa birti þann 9. júlí. 22. júlí 2026 14:35 Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Sjá meira
Hart tekist á um ESB Eins og lýðum má ljóst vera ganga Íslendingar að kjörborðinu þann 29. ágúst næstkomandi til að taka afstöðu til þess hvort stjórnvöld eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Málið er afar umdeilt en menn virðast ekki einu sinni geta komið sér saman um það hvort um eiginlegar samningaviðræður sé að ræða. 23. júlí 2026 16:26
Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Vegna töluverðrar umræðu og umfjöllunar um samskipti Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra við erlenda embættismenn og kjörna fulltrúa ber að leiðrétta frétt sem fréttastofa birti þann 9. júlí. 22. júlí 2026 14:35