Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. júlí 2026 22:27 Grótta kom til baka gegn FHL og jók forskot sitt á toppi Lengjudeildar kvenna. grótta Eftir fjóra sigra í röð gerði Grótta 3-3 jafntefli við FHL í Lengjudeild kvenna í kvöld. KR hefði getað minnkað forskot Gróttu á toppnum en tapaði fyrir ÍA, 3-2. Völsungur vann langþráðan sigur og gott gengi Keflavíkur hélt áfram.
Þegar ein mínúta var til leiksloka var Grótta 1-3 undir gegn FHL. En tvö mörk á tveimur mínútum, frá Telmu Sif Búadóttur og Rakel Lóu Brynjarsdóttur, tryggðu Seltirningum stig. Nicole Douglas kom Gróttu yfir á 19. mínútu en FHL svaraði með þremur mörkum frá Eddu Maren Sonjudóttur, Alexis Wright og Christu Björgu Andrésdóttur. FHL er með fjórtán stig í 8. sæti deildarinnar en Grótta er áfram á toppnum, nú með 28 stig. KR, sem er í 2. sæti deildarinnar, hefði getað nýtt sér jafnteflið á Seltjarnarnesi og minnkað forskot Gróttu niður í þrjú stig. En KR tapaði 3-2 fyrir ÍA á Akranesi. Skagakonur byrjuðu leikinn af krafti og Madison Schwartzenberger kom þeim yfir á 13. mínútu. Fimm mínútum skoraði Alliyah Rowe annað mark ÍA og staðan í hálfleik var 2-0. Rowe skoraði öðru sinni á 62. mínútu og kom heimakonum þremur mörkum yfir. Ólöf Freyja Þorvaldsdóttir hleypti spennu í leikinn með tveimur mörkum með sex mínútna millibili en nær komust gestirnir úr Vesturbænum ekki. KR er í 2. sæti deildarinnar með 22 stig, sex stigum á eftir Gróttu. Liðin mætast á Meistaravöllum í næstu umferð. ÍA er í 6. sætinu með fjórtán stig. Völsungur vann sinn fyrsta sigur síðan 25. maí þegar liðið sigraði botnlið Tindastóls, 3-0, á Húsavík. Ísabella Anna Kjartansdóttir, Auður Ósk Kristjánsdóttir og Hildur Arna Ágústsdóttir skoruðu mörk Völsungs. Þetta var fjórða tap Tindastóls í röð en liðið er enn með sín þrjú stig á botni deildarinnar. Völsungur er í 9. sætinu með ellefu stig. Keflvíkingar gerðu góða ferð á Selfoss og unnu 0-1 sigur. Oliva Simmons skoraði eina mark leiksins strax á 3. mínútu. Þetta var þriðji sigur Keflavíkur í röð. Liðið er komið upp í 4. sæti deildarinnar með sextán stig. Selfoss er einnig með sextán stig í 5. sætinu.
Lengjudeild kvenna Grótta FHL ÍA KR Völsungur Tindastóll UMF Selfoss Keflavík ÍF Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira