Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. júlí 2026 20:05 Gylfi Tryggvason var sáttur eftir sigurinn á Fram sem skilaði Grindavík/Njarðvík í bikarúrslit í fyrsta sinn. vísir/guðmundur Orðið frábært kom oft fyrir í viðtali við Gylfa Tryggvason, þjálfara Grindavíkur/Njarðvíkur, eftir sigurinn á Fram, 0-3, í dag. Enda tilefni til því Suðurnesjaliðið er komið í bikarúrslit í fyrsta sinn. „
Þetta var dýrðardagur. Frábærar aðstæður, frábært veður, frábær andstæðingur, frábær frammistaða hjá okkur og frábær niðurstaða sem er að skila okkur í bikarúrslitaleik á Laugardalsvelli. Ég á ekki mörg orð,“ sagði Gylfi við Vísi eftir leikinn á Lambhagavellinum. En hvað gekk vel hjá Grindavík/Njarðvík í dag? „Mér fannst við spila þennan leik af miklu hugrekki og leikgleði og fannst við bara góðar; ákveðnar í okkar návígum og héldum ágætlega í boltann og vorum með ágætis stjórn á leiknum. Mér fannst Fram samt bara flottar í dag. Þetta voru engir yfirburðir en mér fannst við samt eiga skilið að fara áfram,“ svaraði Gylfi. Fyrstu tvö mörk Grindavíkur/Njarðvíkur voru keimlík en þau komu með skotum rétt fyrir utan vítateig. Gestirnir ógnuðu talsvert með langskotum en Gylfi segir að það hafi ekki verið á teikniborðinu fyrir leik. „Nei, alls ekki. Ef andstæðingurinn verst aftar eru þau skot meira í boði. Ef andstæðingurinn stígur ofar til þess að loka þeim skotum förum við bara á bak við hann og ógnun með hraða og krafti. Að mínu mati erum við með mjög fjölhæfan sóknarleik og getum sótt hvernig sem okkur sýnist,“ sagði Gylfi. „Mér er alveg sama hvernig andstæðingar verjast á móti okkur. Mér finnst við alltaf vera ógnandi. Þannig að við bara veljum þau svæði út frá því hvaða svæði andstæðingurinn gefur okkur.“ Grindavík/Njarðvík komst í 0-2 í upphafi seinni hálfleiks og varðist vel eftir það. „Varnarleikurinn var traustur en manni líður aldrei vel í 2-0. Þriðja markið hérna skiptir sköpum. Mér fannst þetta smá sveiflukennt eftir að við skoruðum annað markið. Þær áttu kafla þar sem þær voru ofan en við náðum síðan stjórn á þessu. Mér fannst við eiga að ná þriðja markinu inn en gerðum það ekki fyrr en seinna og þá fór manni að líða vel í 3-0,“ sagði Gylfi. Hann getur ekki beðið eftir því að stýra Grindavík/Njarðvík í bikarúrslitaleiknum 12. september. „Það er mjög spennandi og það er ofboðslega gaman að sjá fullt af fólki mæta hérna í stúkuna og gleðjast saman yfir þessu af því að þetta hefur aldrei áður gerst í sögu félagsins. Við þurfum að njóta og fagna þessu vel,“ sagði Gylfi að lokum.
Mjólkurbikar kvenna UMF Grindavík UMF Njarðvík Tengdar fréttir Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Natasha Anasi, reyndasti leikmaður Grindavíkur/Njarðvíkur, brosti breitt eftir að liðið tryggði sér sæti í bikarúrslitum í fyrsta sinn. Natasha skoraði þriðja og síðasta mark Grindavíkur/Njarðvíkur í öruggum sigri á Fram, 0-3, í dag. 25. júlí 2026 19:52 Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira
Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Natasha Anasi, reyndasti leikmaður Grindavíkur/Njarðvíkur, brosti breitt eftir að liðið tryggði sér sæti í bikarúrslitum í fyrsta sinn. Natasha skoraði þriðja og síðasta mark Grindavíkur/Njarðvíkur í öruggum sigri á Fram, 0-3, í dag. 25. júlí 2026 19:52