Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar 27. júlí 2026 12:04 Nú þegar sólin hefur loksins ákveðið að sýna sig á suður- og vesturlandi fer fólk að lyfta hlífðarkápunni af grillinu og draga fram gaskúta og kolapoka sem setið hafa óhreyfðir síðustu vikur. Sem betur fer bíða grillaranna gnægð íslensks góðgætis í verslunum landsins, hvort sem bragðlaukarnir þrá lambalærissneiðar, grísakótilettur, nautasteikur eða kjúklingalæri að ógleymdum kartöflum og brakandi fersku grænmetinu sem ómissandi er með öllum grillmat. Þessi gæðamatur er hér á boðstólum vegna þess að á Íslandi er öflugur landbúnaður mannaður einvalaliði fólks sem leggur allan sinn metnað og elju í að framleiða matvöru sem er einstök á heimsvísu. Fyrir utan það að bragðast hreinlega betur þá geta neytendur íslenskra landbúnaðarafurða gengið að því vísu að við framleiðslu þeirra var ekki notað nema brot af þeim sýklalyfjum sem notuð eru annars staðar í heiminum – og er það bara eitt dæmi af mörgum um sérstöðu íslensks landbúnaðar. Landbúnaðarmálin skipta sköpum Og það hefur verið einstaklega ánægjulegt að sjá það í Evrópusambandsumræðu síðustu vikna og mánaða hvað mörgum er annt um íslenskan landbúnað og hvað mikil og almenn samstaða er um að verja sérstöðu hans og skapa honum þau starfsskilyrði sem þarf til að vegur hans geti orðið sem mestur. Hver stjórnarliðinn á fætur öðrum, þingmenn og ráðherrar, hefur stigið fram og sagt opinberlega að íslenskur landbúnaður skipti lykilmáli í kosningunum og mögulegum aðildarviðræðum við ESB. Fleiri en einn stjórnarliðinn hefur sagt beint út að endanleg afstaða viðkomandi til aðildar að sambandinu muni ráðast af því hvernig tekst til í samningaviðræðum um landbúnaðarmál. Í nýlegri grein á Vísi sagði utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, að undanþágur og sérlausnir þær sem Finnar og Svíar fengu á sínum tíma eigi að vera „lágmarksviðmið“ í viðræðunum og tiltekur fleira sem huga þurfi að varðandi landbúnað, svo sem mikilvægi tollverndar í núverandi kerfi hér á landi. Burtséð frá afstöðu fólks til kosninganna í haust og burtséð frá því hvernig þær kosningar fara þá hefur umræðan varpað ljósi á mikilvægi landbúnaðar, sem og þessa almennu og miklu velvild sem bændur greinilega njóta meðal þingmanna stjórnarflokkanna. Málið er nefnilega að fjölmargt er hægt að gera í málefnum landbúnaðar á Íslandi og þörfin á aðgerðum er orðin mjög brýn. Möguleikarnir eru margir fyrir stjórnmálafólk sem vill efla íslenskan landbúnað, styðja við nýliðun og rétta samkeppnisstöðu íslenskra landbúnaðarvara gagnvart innfluttum mætvælum. Almennur vilji til að gera betur Framtíð íslensks landbúnaðar er spennandi. Til skamms tíma horfum við til haustsins, þess mikla uppskerutíma þegar nýmetið gleður landann, en til lengri tíma litið er líka til mikils að vinna ef við berum gæfu til að skapa landbúnaði traust starfsskilyrði og ég sé ekkert því til fyrirstöðu að það takist. Núgildandi búvörusamningar áttu að renna út um næstu áramót en samkomulag náðist um framlengingu þeirra um eitt ár og verður þessi tími nýttur til að semja um starfsskilyrði landbúnaðarins til nánustu framtíðar. Miðað við orðræðu stjórnarliða geta bændur ekki verið annað en bjartsýnir á vinnuna sem framundan er, því almennur vilji er greinilega til þess að styrkja verulega stöðu bænda. Það er nefnilega til mikils að vinna, og ekki eftir neinu að bíða. Íslenskur landbúnaður framleiðir ekki einungis matvæli sem eru einstök á heimsvísu hvað varðar hreinleika, hollustu og umhverfisáhrif, heldur er landbúnaðurinn algerlega samofinn samfélaginu og einn mikilvægasti þráður þjóðarsálarinnar. Höfundur er formaður Bændasamtaka Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Trausti Hjálmarsson Landbúnaður Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen Skoðun Skoðun Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun