Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar 27. júlí 2026 13:02 Ákvörðun sem tekin er í myrkri eða óvissu er sjaldnast gæfurík. Þegar við erum stödd á krossgötum í lífinu, hvort sem það varðar fjármál heimilisins, menntun barna okkar eða rekstur fyrirtækja, reynum við ævinlega að afla okkur eins mikilla upplýsinga og mögulegt er. Enginn skrifar undir kaupsamning á fasteign án þess að skoða ástand hennar, og enginn skuldbindur sig til stórra verkefna eingöngu byggða á innsæi eða hálfsannleika. Við viljum vita, ekki halda. Sama lögmál hlýtur að gilda þegar kemur að framtíð íslensku þjóðarinnar og hagsmunum komandi kynslóða. Í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið snýst spurningin í grunninn um þetta eina einfalda atriði: Viljum við taka upplýsta ákvörðun byggða á staðreyndum, eða viljum við loka dyrunum byggða á ótta, getgátum eða gömlum mýtum? Að segja JÁ í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu er ekki það sama og að ganga í Evrópusambandið. JÁ-ið er yfirlýsing um að við viljum ljúka samningnum til þess að sjá nákvæmlega hvað stendur á blöðunum. Það er krafa um að við byggjum ákvörðun okkar á vitneskju en ekki ágiskunum. Í umræðunni um Evrópumálin hefur of lengi gætt ákveðins upplýsingatómarúms. Andstæðingar viðræðna fullyrða gjarnan hvað muni gerast með íslenskan sjávarútveg, landbúnað og fullveldi ef gengið verður í sambandið. Á hinn bóginn benda stuðningsmenn á kosti eins og stöðugri gjaldmiðil, lægri vexti og ríkari neytendavernd. En á meðan viðræðum er ekki lokið, þá erum við að rífast um hlutina út frá því sem við höldum. Við erum að deila um sviðsmyndir sem enginn getur fullyrt að rætist. Með því að kjósa JÁ og ljúka viðræðuferlinu fáum við endanlegan samning í hendurnar. Þegar sá samningur liggur á borðinu hverfa getgáturnar. Þá fyrst getur þjóðin tekið endanlega afstöðu á traustum grunni. Það felst ákveðinn ótti í því að vilja ekki vita. Ef við stöðvum ferlið núna munum við aldrei komast að því hvaða undanþágur eða sérlausnir Ísland hefði getað fengið, til dæmis í sjávarútvegi og landbúnaði eða varðandi sérstöðu okkar sem eyríki. Við munum væntanlega áfram búa við kerfi þar sem vextir eru hærri en í nágrannalöndunum og verðbólga sveiflast til og frá, án þess að hafa fulla vissu fyrir því hvort annar valkostur hefði reynst betri. Að segja nei við áframhaldandi viðræðum er eins og að neita að opna umslag sem geymir mikilvægar upplýsingar um framtíðina, einfaldlega vegna þess að mann grunar hvað þar stendur. Lýðræðið virkar best þegar borgararnir eru vel upplýstir. Þjóðaratkvæðagreiðsla um lokaniðurstöðu samningsins væri hið fullkomna lýðræðislega ferli. En til þess að sú atkvæðagreiðsla verði marktæk og viturleg þarf samningurinn að verða til. Með því að kjósa JÁ núna tryggjum við að endanlega ákvörðunin verði tekin af þjóðinni sjálfri og með fullt hús krafna og staðreynda í veganesti. Með JÁ-i á Höfuðdaginn erum ekki að skuldbinda okkur til neins annars en að klára heimavinnuna okkar. Það getur verið dýrkeypt að taka ákvarðanir með skort á upplýsingum sem eina leiðarljósið! Við Íslendingar, eigum betra skilið en að framtíð okkar ráðist af pólitískum klækjabrögðum, misvísandi eða röngum upplýsingum og/eða hræðsluáróðri í aðdraganda kosninganna úr ranni nei-sinna. Sýnum skynsemi, látum ekki hræða okkur, sýnum hugrekki til að afla upplýsinga og nýtum tækifærið til að sjá hvað er í boði. Kjósum JÁ og tryggjum að næsta skref okkar verði stigið í fullri birtu staðreyndanna. Það er jú alltaf betra að vita en halda. Höfundur er hagfræðingur MAE og fyrrverandi hreppsnefndarmaður í Skorradal. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar