Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. júlí 2026 10:30 Annar minkur að læðast í grennd við heimili Reynis Grétarssonar.Hann býr í næsta nágrenni við búið. Reynir Grétarsson Talið er að fleiri þúsund dýr hafi sloppið af minkabúi í Mosfellsdal. Yfirdýralæknir Matvælastofnunar segir að talið sé að dýrunum hafi verið sleppt viljandi. Um stórslys sé að ræða sem geti valdið öðrum dýrum miklum þjáningum. „
Við fengum tilkynningu í morgun um að það hefði verið meint innbrot í minkabúi og fjölda dýra hefði verið sleppt,“ segir Þóra Jónasdóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, en bætir við að lögreglan hefur ekki enn staðfest hvort að innbrot hafi verið í raun og rannsakar málið. Hún segist líta slíkt mjög alvarlegum augum en slíkar aðgerðir séu þess eðlis að valda fjölda dýra auknum þjáningum, meiðslum og dauða. Fleiri þúsund dýr voru á búinu og talið er að fleiri þúsund dýr hafi sloppið en nákvæm tala liggur ekki fyrir. Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í morgun sagði að nokkur hundruð minkar hafi sloppið frá Dalsbúi. „Þetta er stórslys fyrir villt fuglalíf sem er á viðkvæmum tíma. Það er mikið af ungum og fuglum þarna í kring á viðkvæmum tíma þannig að þetta er hreint stórslys fyrir villt fuglalíf í kring.“ Hlutverk Matvælastofnunar sé að fylgja málinu eftir í samvinnu við dýraeigendur og að kæra ef talið er að brotið hafi verið gegn lögum um velferð dýra. „Þetta er skýrt brot á lögum um velferð dýra og veldur auknum þjáningum, meiðslum og dauða dýra. Við vörum alifuglabændur við því að alifuglar í nágrenni eru auðvitað í talsverðri hættu búnir af fjölda lausra minka og við vinnum náið með lögreglu til þess að ná utan um málið,“ segir Þóra.
Loðdýrarækt Dýr Minkum sleppt í Mosfellsdal Mosfellsbær Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira