„Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 29. júlí 2026 12:06 Reynir Finndal Grétarsson, íbúi í Mosfellsdal, kíkti út um gluggann heima hjá sér fyrr í dag og sá þar nokkra minka í garðinum. Vísir Íbúi í Mosfellsdal og nágranni Dalsbús, varð var við nokkra minka á kreiki í garðinum heima hjá sér fyrr í dag. Ástandið í dalnum sé nokkuð súrrealískt enda ómi byssuskot um dalinn og lögreglan fljúgi drónum til aðstoðar við leit að minkunum.
Mörg hundruð ef ekki þúsund minkar sluppu út í Dalsbúi í Mosfellsbæ, síðasta minkabúinu á Íslandi, í nótt. „Dóttir mín sem býr hérna líka hringdi í mig og sagði: Heyrðu það er minkur hérna í garðinum hjá þér. Ég kíkti út um gluggann hjá mér og þá var einn hvítur,“ segir Reynir Finndal Grétarsson, íbúi í Mosfellsdal. Hann hafi nú ekki kippt sér upp við einn mink enda komi þeir stundum í heimsókn. „Sérstaklega á haustin þegar verið er að slátra þá sleppa þeir stundum út. Þannig þeir hafa nokkrum sinnum komið hingað minkar síðustu árin.“ „En svo sá ég að þeim hafði verið sleppt út og fór að kíkja út um gluggana og þá voru fleiri hérna í kringum húsið.“ Ástandið minni svolítið á vígvöll enda hafa byssuskot ómað um dalinn frá því í morgun en skotvopnum er beitt við föngun minkanna. Lögreglan hefur einnig flogið drónum um svæðið til aðstoðar við leitina að þeim minkum sem hafa sloppið. „Þetta er ekki skemmtilegt. Þetta er ekki sniðugt, að þurfa að vera með haglabyssu að skjóta minka hérna í kringum bæinn.“ „Ef þeir sleppa mega þeir ekki fara inn aftur og þeir geta ekki lifað í náttúrunni. Svo náttúrlega taka þeir sjálfsagt eitthvað af fuglum og annað þannig það þarf að reyna að ná þeim.“ Einhverjir nágrannar í kring séu með hænur og annan búskap og þurfi því að gera ráðstafanir. Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Hvað finnst þér um þennan verknað, þennan gjörning, að gera þetta? „Mér finnst það náttúrulega galið, þetta gerir ekkert fyrir dýrin. Það er verið að skjóta þau núna sem hann hleypti þannig að hann gerði ekkert fyrir þau. En svo er annað mál hvort a eigi að vera með svona starfsemi, ég veit það ekki, þetta er náttúrulega síðasta búið á Íslandi. Það er bara ekkert sniðugt við þetta.“
Loðdýrarækt Dýr Minkum sleppt í Mosfellsdal Mosfellsbær Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Tengdar fréttir Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Talið er að fleiri þúsund dýr hafi sloppið af minkabúi í Mosfellsdal. Yfirdýralæknir Matvælastofnunar segir að talið sé að dýrunum hafi verið sleppt viljandi. Um stórslys sé að ræða sem geti valdið öðrum dýrum miklum þjáningum. 29. júlí 2026 10:30 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira
Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Talið er að fleiri þúsund dýr hafi sloppið af minkabúi í Mosfellsdal. Yfirdýralæknir Matvælastofnunar segir að talið sé að dýrunum hafi verið sleppt viljandi. Um stórslys sé að ræða sem geti valdið öðrum dýrum miklum þjáningum. 29. júlí 2026 10:30