„Þá bara krassa lungun“ Agnar Már Másson skrifar 30. júlí 2026 22:12 Þegar Sigga vaknaði eftir tíu tíma aðgerð var fjölskyldan öll með henni. Faðir hennar og bróðir höfðu bókað fyrsta flug til Gautaborgar til að elta mæðgurnar en þær höfðu þurft að flýta sér með sjúkraflugi svo Sigga kæmist undir skurðarhnífinn. Aðsend Ungur Hornfirðingur andar léttar eftir að hafa gengist undir lungnaígræðslu í Svíþjóð í apríl. Hún hefur glímt við óskilgreindan lungnasjúkdóm síðustu átta ár en verður nú hraustari með hverjum deginum. Hún kveðst ánægð með að geta nú leikið sér með litlu frænkum sínum.
Morgunblaðið greindi fyrst frá. Sigríður Gísladóttir, yfirleitt kölluð Sigga, ólst upp á Höfn í Hornafirði. Hún er tómstunda- og félagsmálafræðingur að mennt og lýsir sér sem lífsglaðri. Á táningsárunum var hún íþróttastelpa, keppti í blaki með unglingalandsliðinu og fór í sína fyrstu A-landsliðsferð í apríl 2018. En þá tók lífið óvænta stefnu. Sigga var um hríð í unglingalandsliðinu og spilaði einu sinni með A-landsliðinu í blaki 2018.Aðsend Sumarið 2018, þegar hún var tvítug, fór hún skyndilega að finna fyrir mikilli mæði og bláma á vörum og nöglum, og eftir að hún kom heim af Þjóðhátíð þetta sumar átti hún verulega erfitt með andardrátt. Heimilislæknir á Höfn vissi ekki hvað væri að en skynjaði að eitthvað væri alvarlegt og sendi hana til lungnalæknis í Reykjavík. Ekki var hægt að greina sjúkdóminn nákvæmlega, svo hann var skilgreindur sem „óskilgreindur lungnasjúkdómur“. Sjúkdómurinn lýsti sér þannig að lungun urðu stökkbólgin, sem hægði á súrefnisflæði. Sigga hefur þurft að flakka sjúkrahúsana á milli síðustu ár.Aðsend Hún fékk steralyf til að reyna að draga úr bólgunni og var send heim. Hún hélt áfram í vinnu og hóf nám í háskóla. En veikindin létu aftur á sér kræla nokkrum árum síðar. „Þá fór mér að versna bara mikið þegar ég var orðin alveg hreinskilin. Ég held ég hafi sjálf verið bara í svolítilli afneitun, Árið 2024 fór hún aftur í myndatöku og kom þar í ljós að lungun höfðu versnað töluvert. Hún var því sett í alls konar rannsóknir og meðal annars í skoðun hjá lungnalækni í Bretlandi, sem átti litlu auðveldara með að útskýra lungnaveikindin en íslensku kollegar hennar. „Í september í fyrra, 2025, þá vakna ég hérna uppi heima með hita og hérna aukna súrefnisþörf og bara svona almennan, almenna vanlíðan.“ Eftir að sýklalyf dugðu ekki til var hún send til Reykjavíkur í frekari rannsókn, sem betur fer, þar sem nokkrum dögum síðar gáfu lungun sig. „Þá bara krassa lungun, þau bara hætta að starfa í rauninni.“ Þá var hún svæfð og sett í ECMO-vél og svaf í 22 daga. En lungun náðu sér ekki og reyndist þetta mikið högg á líkamann og barátta fyrir líffærin. Um síðastliðinn skírdag barst henni póstur um að hún væri komin á lista yfir lungnaígræðslu og ekki leið á löngu þar til hún fékk góðar fréttir. „Og þá er bara hringt í okkur klukkan fjögur, tveimur dögum eftir að ég er sett á listann. Og þá er bara: „Heyrðu, það er kominn lungi.““ Óveður var í þann mund að skella á þegar mæðgurnar flýttu sér með sjúkraflugi til Svíþjóðar. Það gafst því lítill kostur til að kveðja.Aðsend Þær mæðgurnar fóru rakleiðis í sjúkraflug frá Hornafirði til Gautaborgar en óveður var að skella á og því gafst fjölskyldunni lítill kostur til að kveðja. „Þannig að hurðinni var eiginlega skellt á nefið á pabba,“ segir hún og hlær. Úr sjúkrafluginu.Aðsend Sigga kveðst afar þakklát fjölskyldunni fyrir stuðninginn sem hún fékk.Aðsend Þegar hún fór loks í aðgerðina í Svíþjóð þurfti hún að kveðja mömmu sína um stund, sem tók á: „Ég var samt ekki hrædd um að ég væri eitthvað að fara að deyja og myndi aldrei sjá hana aftur en þetta er samt svona hræðsla sem ég get bara ekki lýst því.“ Tíu klukkutímum síðar vaknaði Sigga upp við að fjölskyldan öll sat hjá henni. Aðgerðin gekk að mestu vel en hún upplifði mikinn sársauka þar sem mænudeyfingin hafði ekki virkað. Henni versnaði svo á ný og var aftur svæfð en vakin viku síðar. Eftir það fór batinn upp á við en röddin hennar er enn að ná sér. Nú er hún heima á Höfn, heldur áfram í sjúkraþjálfun og styrkist með hverjum degi. Henni þykir ánægjulegt að geta tekið djúpan andardrátt á ný en einnig að geta tekið þátt í daglegu lífi og getað leikið sér við litlu frænkur sínar. Hún hlakkar til að geta unnið aftur og farið aftur til útlanda. Sigga með litlu frænkum sínum.Aðsend Hún er þakklát líffæragjafanum fyrir lungun og ekki síður fjölskyldu sinni fyrir ómetanlegan stuðning. „Mikið lifandis er ég þakklát fyrir allt sem þau hafa gefið mér. Það fer enginn einn í svona verkefni, sko, það er ekki hægt.“
Sveitarfélagið Hornafjörður Heilbrigðismál Ástin og lífið Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira