Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar 1. ágúst 2026 17:02 Ég er fylgjandi aðild að Evrópusambandinu þó að ég slái þann varnagla að ég myndi ekki samþykkja hvaða samning sem er. Aðalástæða skoðunar minnar eru gjaldmiðla- og gengismál. Ég gef mér þá forsendu að einhliða upptaka annars gjaldmiðils sé óraunhæfur kostur, lánveitandi til þrautarvara sé nauðsynlegur þáttur fyrir öll myntsvæði og þá á öllu svæðinu. Það er önnur umræða hvort sá möguleiki sé til staðar að semja við seðlabanka tiltekins myntsvæðis um að vera banki bankanna á Íslandi en mér finnst það óraunhæft. Að mínu mati höfum við tvo kosti í þessu sambandi, halda krónu eða ganga í Evrópusambandið og taka upp evru. Ég hef lagt mig eftir því að hlusta á þá sem telja upptöku evru fýsilegri kost en að halda krónu og ég hef einnig hlustað eftir rökum þeirra sem telja krónu betri kost en evru. Það er auðvitað svo að við aðstæður sem þessar, þ.e. þegar val kann að standa á milli tveggja kosta þá er það sjaldnast þannig að annar kosturinn hafi svo yfirgnæfandi kosti umfram hinn að það sé í raun sjálfgefið hvorn kostinn maður velur. Sama er uppi á teningnum með gjaldmiðlamálin hér á landi. Í mjög einfölduðu máli býður evran upp á stöðugleika á meðan krónan býður upp á sjálfstæða peningastefnu og skjóta aðlögun við tilteknar aðstæður. Hér er rétt að vísa til skýrslu sem unnin var að beiðni fjármálaráðherra og birt í maí síðastliðnum, „A report on ‘Currency Matters‘ for the Iceland Ministry of Finance and Economic Affairs.“ Í skýrslunni er á það bent að hin skjóta aðlögun sé ekki án kostnaðar þar sem í kjölfar gengislækkunartímabila fylgi oft verðbólga og rýrnun raunlauna til langs tíma. Það er óumdeilt að vaxtastig yrði lægra værum við með evru en fastgengi myndi leiða til þess að við tilteknar aðstæður, myndi atvinnuleysi aukast en verðbólga síður samanborið við hærra vaxtastig með krónu og aukna verðbólgu við nefndar tilteknar aðstæður en atvinnustig ekki breytast mikið. Sjálfstæður gjaldmiðill hefur þann kost umfram það að vera í myntsamstarfi að það má nota hann til að takast á við sveiflur í hagkerfinu. Það má því segja að hér takist á sjónarmið þar sem aukin verðbólga jafnar byrðar af niðursveiflu í hagkerfinu og atvinnustig sé þá viðunandi og sjónamið þar sem verðbólgu helst í jafnvægi en atvinnuleysi eykst. Mér finnst í þessu sambandi nauðsynlegt að spyrja hvort það sé í raun þannig að hærri verðbólga og stöðugt atvinnustig geri það að verkum að byrðunum sé jafnt dreift? Í verðbólgu þá lækka raunlaun, kaupmáttur rýrnar, auk þess sem verðtryggð lán hækka sjálfkrafa og strax. Vextir á óverðtryggðum lánum hækka einnig þó að það gerist seinna, vaxtastig inniheldur vænta verðbólgu lánveitanda sem hækkar með aukinni verðbólgu. Tæki Seðlabankans til að takast á við aukna verðbólgu er jú að hækka vexti. Það hefur komið fram í þessari umræðu að undanförnu og það er í raun gömul saga og ný að sögulega er atvinnuleysi þyrnir í augum okkar Íslendinga. Á Íslandi hefur oftast verið næga vinnu að hafa og þegar kaupmáttur rýrnar er hægt að bæta við sig vinnu. Við höfum sætt okkur við að sitja uppi með hærri lán eftir verðbólguskot eða viðvarandi háa verðbólgu. Við höfum í raun þurft að sætta okkur við að nafnverð verðtryggðra lána stendur svo gott sem í stað langtímum saman en raunvirði þeirra lækkar, m.ö.o. þá fara afborganirnar í það að greiða vexti og verðbætur en sáralítið er greitt af höfuðstóli lánsins. Næst þegar er samið um kaupgjald veldur hækkun þess því að við ráðum betur við afborganir af lánunum en það verður seigara í verðbólgunni. Af þessu má ráða að svarið við spurningu minni um hvort byrðum af aukinni verðbólgu sé jafn dreift er að svo er ekki. Aukin verðbólga kemur harðar niður á þeim sem skulda samanborið við þá sem skulda ekki eða eiga fjármuni. Það er augljóst í mínum huga að hvorki króna eða evra er töfralausn. Ég er þó þeirrar skoðunar að fleiri þættir séu jákvæðir fyrir upptöku evru þegar horft er á einangrað á gjaldmiðlamálin. Þættir sem ég hef ekki nefnt hér að framan eru svo dæmi séu tekin gjaldeyrisvarasjóður okkur sem notaður er til inngripa á gjaldeyrismarkaði og viðskiptakostnaður sem myndi, með upptöku evru, lækka gagnvart viðskiptalöndum okkar sem eru með evru. Hinn 29. ágúst næstkomandi fáum við tækifæri til að ákveða hvort við viljum sjá hvort við getum fengið aðildarsamning við ESB sem þóknast okkur, m.a. í því augnamiði að taka hér upp evru. Slíkur samningur þarf m.a. að innihalda viðeigandi ákvæði um stjórn auðlinda okkar. Merkjum við já til að fá betri upplýsingar svo við getum síðar tekið upplýsta ákvörðun um hvort við teljum hag okkar, m.a. með tilliti til gjaldmiðilsins, betur borgið innan ESB en utan þess. Höfundur er alþingismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Grímur Grímsson Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar