Kyssti konuna áður en hann kom fyrstur í mark á nýju meti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2026 13:31 Lukas Schnödewind stoppaði til að kyssa konuna og fagnaði svo gríðarlega í markinu eftir átta klukkutíma baráttu. @ostseemantri Þríþrautarkappinn Lukas Schnödewind setti nýtt brautarmet þegar hann tryggði sér sigur í OstseeMan-þríþrautinni í gær en vakti líka athygli fyrir hvernig hann fagnaði sigrinum.
OstseeMan-þríþrautin er hefðbundinn járnkarl þar sem keppendur synda 3,8 kílómetra, hjóla 180 kílómetra og hlaupa loks 42,2 kílómetra maraþonhlaup. Schnödewind kom í mark á átta klukkutímum, fimm mínútum og 21 sekúndu. Hann hefði reyndar getað verið aðeins fljótari í markið. Schnödewind var á frábærum tíma þegar hann hljóp í markið og langt á undan næsta keppanda. Hann gaf sér því tíma til að smella kossi á konuna áður en hann hljóp yfir marklínuna. Þetta má sjá hér fyrir neðan en hann fagnaði líka gríðarlega þegar hann var kominn í mark enda frábær tími og frábær sigur hjá þessum þrítuga kappa. „Þetta er stærsti sigur sem ég hef unnið hingað til,“ sagði Schnödewind í viðtali við NDR Schleswig-Holstein eftir keppnina. Sigur Schnödewinds virtist þó vera í smá hættu skömmu fyrir lok keppninnar því sigurvegari síðasta árs, Florian Harbig, hafði minnkaði forskot hans úr sex mínútum niður í 30 sekúndur. „Þá var ég kominn með tárin í augun, ég hélt að þetta væri búið spil hjá mér,“ sagði Schnödewind. En svo var ekki því Harbig var sprunginn og þjáðist líka af vöðvakrömpum. Schnödewind kom að lokum í mark með rúmlega sex mínútna forskot og hafði því tíma til að fagna eftirminnilega með konu sinni. View this post on Instagram A post shared by OstseeMan Triathlon Glücksburg (@ostseemantri)
Þríþraut Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Skolað í burtu úr Vesturbæ en skáluðu hjá Audda Blö Íslenski boltinn „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Enski boltinn Læti í göngunum eftir leik Íslenski boltinn Adam Ægir: „Ég skuldaði KA þetta“ Íslenski boltinn KA – Þór 3-0 | Sendu erkifjendurna í fallsæti með lífsnauðsynlegum sigri Íslenski boltinn Hvar er reiði Sölvi? „Þarf mjög mikið til að fá mig til að missa kúlið“ Íslenski boltinn „Klúbbur sem ætti að geta verið með bestu klúbbum landsins“ Íslenski boltinn Dagur Kári jók erfiðið og hreppti brons í Ungverjalandi Sport Fleiri fréttir Dagskráin: Tvær messur og ensku stórveldin á ferðinni Skolað í burtu úr Vesturbæ en skáluðu hjá Audda Blö „Þetta er ekki að fara að brjóta Þórsliðið“ Adam Ægir: „Ég skuldaði KA þetta“ Albert með Lazio á toppinn en Þórir settist niður Jón Dagur mætir sjóðheitur í landsleikina Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Sjáðu markið sem kom Þrótti í Bestu deildina „Skorti yfirvegun og gæði á hólminum“ „Vinnusemi og liðsheild skilaði þessum sigri“ „Klúbbur sem ætti að geta verið með bestu klúbbum landsins“ KA – Þór 3-0 | Sendu erkifjendurna í fallsæti með lífsnauðsynlegum sigri Dagur Kári jók erfiðið og hreppti brons í Ungverjalandi Raphinha með þrennu í Sevilla Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið „Er þetta ekki ástæðan fyrir því að menn borga sig inn?“ Uppgjörið: Valur - Þór/KA 0-1 | Margrét tryggði Þór/KA dýrmæt stig á Hlíðarenda „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Hvar er reiði Sölvi? „Þarf mjög mikið til að fá mig til að missa kúlið“ Harry Kane sló ótrúlegt met í Þýskalandi Læti í göngunum eftir leik Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar ÍR vann öruggan sigur og ÍBV tók Selfoss Ævintýrið heldur áfram hjá Frey og hans mönnum Sjáðu trylltan fögnuð Víkinga þegar titillinn var í höfn og viðtal við hetjuna Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Fram og Stjarnan unnu bæði Glódís og liðsfélagar hennar unnu þægilegan sigur Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Sjá meira