„Þetta er búið, við erum góðir“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. ágúst 2026 19:45 Jones og Szoboszlai á góðri stundu. Naomi Baker/Getty Images Dominik Szoboszlai segist hafa átt gott samtal við Curtis Jones og Kostas Tsimikas í kjölfar rifrildis sem þeir áttu eftir leik Liverpool og Leeds á dögunum.
Eftir 1-0 sigur gegn Wrexham í síðustu viku sáust Szoboszlai, Jones og Tsimikas rífast. Szoboszlai hafði verið fyrirliði Liverpool í leiknum og gefið Tsimikas fyrirliðabandið þegar hann fór út af. Jones virtist eiga upptökin að rifrildinu og var sagður ósáttur við að hafa ekki fengið bandið, sem Tsimikas kastaði í jörðina þegar hann svaraði honum. „Það var aldrei neinn ágreiningur milli okkar þriggja. Við ræddum hlutina bara inni á vellinum. Það voruð þið [blaðamenn] sem blésuð hlutina upp úr samhengi. Næst pössum við að fara inn í klefa. Það var enginn reiður við neinn. Þetta er búið, við erum góðir,“ sagði Szoboszlai sem er í hlutverki fyrirliða í stað Virgil van Dijk í æfingaferð Liverpool í Bandaríkjunum. Szoboszlai sagði nýjan þjálfara liðsins, Andoni Iraola, ekki búinn að ræða við hann um stöðu varafyrirliða eftir að Andy Robertson fór til Tottenham og Mohamed Salah rann út á samningi. „Nei það hefur ekkert samtal átt sér stað. Við erum auðvitað með Virgil sem fyrirliða. Svo er Ali [Alisson Becker]. Við erum með Joe Gomez. Við þurfum ekkert að eiga neitt samtal. Ali er ekki hér og Joe er meiddur. Ég var mjög stoltur að fá fyrirliðabandið og við sjáum bara hvað gerist. Þetta er ekki mitt val en þetta er ekki ákveðið.“
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn „Algjör óþarfi fyrir dómarann að vera búa til svona úlfalda úr mýflugu“ Sport Fleiri fréttir Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands JJ Gabriel mættur til Barcelona Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Sjá meira