Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar 6. ágúst 2026 19:00 Í kjölfar greinar undirritaðs, Evrópher, vígbúnaður og herskylda, í Morgunblaðinu 30. júlí sl. hefur orðið nokkur umræða á netinu og nú síðast í nýlegri grein Svans Sigurbjörnssonar hér á Vísi. Með aðild að Evrópusambandinu er ekki tjaldað til einnar nætur, heldur áratuga, ef ekki árhundruða. Um er að ræða framsal stórs hluta stjórnvalds úr landi og óvíst er með möguleika á því að endurheimta það. Auk þess að athuga núverandi stöðu mála, er því mikilvægt að gera sér grein fyrir hvert sambandið stefnir og hvaða viðhorf ríkja í sambandinu, að því leyti sem það er hægt. Þótt deilt sé um að hvaða marki sambandið sé lýðræðislegt má ætla að stefna þess taki til langframa að einhverju marki mið af viðhorfum og vilja íbúa þess. Í stuttu máli er staðan sú að það er sterkur vilji í Evrópusambandinu til að hervæðast. Sá vilji nær frá almenningi upp í efstu valdalög. Evrópuþingið hefur ályktað um málið með miklum meirihluta. Evrópusambandið hefur skrifað vopnainnkaupalista og stýrir ýmsum þáttum fjármála í því sambandi. Aðildarríkin munu halda vopnunum til haga, a.m.k. til að byrja með. Upphæðirnar sem um ræðir eru himinháar, síðasta 4 ára áætlun mundi þýða um 50 milljarða íslenskra króna fyrir Ísland á ári, ef Ísland væri innanborðs. Fjölmörgum spurningum er enn ósvarað varðandi hervæðingu Evrópusambandsins. Sumum þeirra verður eflaust svarað á næstu árum, en það er óháð aðildarferli Íslands, ef af því verður. Við vitum til dæmis ekki hverjir munu bera vopnin. Við vitum þó að sambandið og íbúar aðildarríkja þess telja herskyldu eðlilegan valkost. Það er vægast sagt sérkennilegt að vilja ganga í Evrópusambandið í þeirri trú að hervæðing þess nái aldrei fram að ganga, þvert á vilja almennings, Evrópuþingsins og fjölda valdamanna innan sambandsins. Ekki er síður vafasamt að festa trú á að að Ísland geti um aldur og ævi staðið utan við hernaðarbrölt sambandsins, ef það gengur í það, bæði hvað varðar beina þátttöku og að borga reikningana. Sjálfsagt er í því sambandi að hafa í huga að stjórnvald sambandsins gagnvart aðildarríkjum og þegnum sambandsins er algerlega ósambærilegt við það sem tengist aðild að Nató. Höfundur er formaður Heimssýnar, félags um fullveldi Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haraldur Ólafsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun