Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar 6. ágúst 2026 21:30 Röng fullyrðing frá Já til að sjá um að sænska krónan væri tengd evrunni vakti eðlilega athygli í gær. En mistökin draga samt fram áhugaverðan mun á Svíum og Íslendingum. Svíar sóttu um aðild að ESB árið 1991 og samþykktu hana naumlega í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1994. Aðeins 52,3% sögðu já en 46,8% nei. Sænska þjóðin var því bersýnilega klofin þegar hún gekk í ESB árið 1995. Sá klofningur er að minnsta kosti langt frá því að vera jafn djúpur í dag. Samkvæmt nýjustu könnun telja 79% Svía að ESB-aðildin hafi gagnast landinu. Fyrir Svía snerist aðildin ekki fyrst og fremst um að losna við eigin gjaldmiðil, heldur um að ganga inn í tollabandalag ESB og sameiginlega viðskiptastefnu þess, verða fullgildir þátttakendur í samstarfinu og fá sæti við ákvarðanatökuna. Þeir sömdu jafnframt um sérlausnir, þar á meðal undanþágu frá banni ESB við sölu á snusi sem gildir enn. Evran var ekki komin í umferð og gjaldmiðilsspurningin varð sérstakt kosningamál síðar. Árið 2003 höfnuðu 55,9% Svía því að taka upp evru en 42% samþykktu. Sænska krónan er ekki tengd evrunni og hefur vissulega bæði sveiflast og veikst. En hún er einfaldlega þeirra gjaldmiðill. Svíar búa við stöðugra verðlag og mun lægri vexti en við. Það þykir víst meira að segja einkar erfitt að útskýra fyrir Svíum hvað íslensk verðtrygging eiginlega er. Hér á Íslandi horfa margir hins vegar fyrst og fremst til þess möguleika sem ESB-aðild gæti opnað: að taka síðar upp traustari gjaldmiðil, fá lægri vexti og stöðugra verðlag og skapa loksins forsendur til að leggja verðtrygginguna af. Í dag eru meginvextir 7,75% á Íslandi, samanborið við 2,4% á evrusvæðinu og 1,75% í Svíþjóð. Það er ekki einhver fræðileg umræða. Munurinn birtist mánaðarlega í afborgunum heimilanna. Svíar sáu kosti ESB-aðildar án þess að þurfa að losna við krónuna sína. Við Íslendingar sjáum einn helsta kostinn við ESB-aðild í því að geta losnað við okkar. Það segir eiginlega allt sem segja þarf um muninn á sænskri og íslenskri krónu. Jákvæður stafrænn hönnuður og áhugamaður um bætta samfélagsumræðu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Röng fullyrðing frá Já til að sjá um að sænska krónan væri tengd evrunni vakti eðlilega athygli í gær. En mistökin draga samt fram áhugaverðan mun á Svíum og Íslendingum. Svíar sóttu um aðild að ESB árið 1991 og samþykktu hana naumlega í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1994. Aðeins 52,3% sögðu já en 46,8% nei. Sænska þjóðin var því bersýnilega klofin þegar hún gekk í ESB árið 1995. Sá klofningur er að minnsta kosti langt frá því að vera jafn djúpur í dag. Samkvæmt nýjustu könnun telja 79% Svía að ESB-aðildin hafi gagnast landinu. Fyrir Svía snerist aðildin ekki fyrst og fremst um að losna við eigin gjaldmiðil, heldur um að ganga inn í tollabandalag ESB og sameiginlega viðskiptastefnu þess, verða fullgildir þátttakendur í samstarfinu og fá sæti við ákvarðanatökuna. Þeir sömdu jafnframt um sérlausnir, þar á meðal undanþágu frá banni ESB við sölu á snusi sem gildir enn. Evran var ekki komin í umferð og gjaldmiðilsspurningin varð sérstakt kosningamál síðar. Árið 2003 höfnuðu 55,9% Svía því að taka upp evru en 42% samþykktu. Sænska krónan er ekki tengd evrunni og hefur vissulega bæði sveiflast og veikst. En hún er einfaldlega þeirra gjaldmiðill. Svíar búa við stöðugra verðlag og mun lægri vexti en við. Það þykir víst meira að segja einkar erfitt að útskýra fyrir Svíum hvað íslensk verðtrygging eiginlega er. Hér á Íslandi horfa margir hins vegar fyrst og fremst til þess möguleika sem ESB-aðild gæti opnað: að taka síðar upp traustari gjaldmiðil, fá lægri vexti og stöðugra verðlag og skapa loksins forsendur til að leggja verðtrygginguna af. Í dag eru meginvextir 7,75% á Íslandi, samanborið við 2,4% á evrusvæðinu og 1,75% í Svíþjóð. Það er ekki einhver fræðileg umræða. Munurinn birtist mánaðarlega í afborgunum heimilanna. Svíar sáu kosti ESB-aðildar án þess að þurfa að losna við krónuna sína. Við Íslendingar sjáum einn helsta kostinn við ESB-aðild í því að geta losnað við okkar. Það segir eiginlega allt sem segja þarf um muninn á sænskri og íslenskri krónu. Jákvæður stafrænn hönnuður og áhugamaður um bætta samfélagsumræðu.
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun