Innlent

Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Ís­lendinga

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hádegismynd

Stækkunarstjóri Evrópusambandsins vill finna „skapandi lausnir“ fyrir báðar hliðar vegna sérstöðu Íslands í sjávarútvegi og landbúnaði. 

Við fjöllum um Evrópumálin í hádegisfréttum Bylgjunnar og ræðum þessa fullyrðingu við framkvæmdastjóra SFS.

Þá reynum við að spá fyrir um veðrið þegar sólmyrkvinn skellur á í næstu viku en veðurfræðingur segir óvissuna enn mikla. 

Von er á metþátttöku í gleðigöngu Hinsegin daga sem fram fer á morgun og taka fyrstu götulokanir í miðborg Reykjavíkur gildi núna í hádeginu.

Í sportinu segjum við frá Evrópuleikjum íslenskra liða sem fram fóru í gær og í morgun. 

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 7. ágúst 2026



Fleiri fréttir

Sjá meira


×