Óvissa með sólmyrkvaveður Bjarki Sigurðsson skrifar 7. ágúst 2026 12:40 Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur lítur hér til himins líkt og flestir landsmenn koma til með að gera um hálf sex leytið miðvikudaginn 12. ágúst. Vísir/Vilhelm Mikil óvissa er um veðrið á sólmyrkvanum á miðvikudag. Veðurfræðingur segir erfitt að spá í skýjafarið. Skýin ættu ekki að skemma sólmyrkvann en hafa töluverð áhrif á upplifunina að mati stjörnufræðings.
Fimm dagar eru í sólmyrkvann og fólk er farið að velta því fyrir sér hvernig veðrið verður á vesturhluta landsins þar sem berja má myrkvann augum. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að þótt stutt sé í stóru stundina sé of snemmt að segja til um hvernig veðrið verður. „Það er nú aðeins of langt í sólmyrkvann til að geta rýnt spár af einhverju öryggi og gagni. Það er mikil óvissa. Eitt af því erfiðasta sem maður spáir í varðandi veður er skýjafarið og skýjahulan. Spár í gær og fyrradag voru sumar hverjar nokkuð vænlegar en síður í dag. Það er til marks um flöktið sem er enn þá í þessu,“ segir Einar. Á sólmyrkvavef Sævars Helga Bragasonar stjörnufræðings er fjallað um hvað gerist ef það verður skýjað þegar sólmyrkvinn á sér stað. Þar segir að veðrið þurfi alls ekki að vera fullkomið. Háskýjaslæða hafi lítil sem engin áhrif. Verði léttskýjað ætti að vera nóg af götum til að allt sjáist en verði hálf- eða alskýjað upplifi fólk myrkvann á allt annan hátt. Aðdragandinn yrði ekki eins áhugaverður en þrjátíu sekúndum fyrir almyrkva myndi skella á hratt sólsetur og jafn hröð sólarupprás skömmu síðar. „Það eru líkur á því að það verði skil lægðar á einhverjum þvælingi skammt suður af landinu á þriðjudag eða miðvikudag. Svo er bara spurning hvað gerist, hvort þau verði yfir okkur með rigningu um það leyti sem sólmyrkvinn verður eða hvort skilin verði farin hjá eða þau nái ekki til lands. Allt þetta þrennt kemur til greina,“ segir Einar.
Veður Geimurinn Tunglið Almyrkvi 12. ágúst 2026 Sólin Tengdar fréttir Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, segir það ekki rétt að börn yngri en tólf ára þurfi að nota gleraugu allan tímann á meðan almyrkvinn stendur yfir þann 12. ágúst. 7. ágúst 2026 09:46 Hvað er sólmyrkvi? Almyrkvar á sólu eru sjaldgæfir atburðir á hverjum stað á jörðinni, þar sem skugginn fellur aðeins á lítið takmarkað svæði. Fræðilega séð gætu almyrkvar lengst varað í 7 mínútur og 31 sekúndu en venjulega eru þeir ekki lengri en 2-4 mínútur. En hver er munurinn á almyrkva, deildarmyrkva og hringmyrkva? og hvað er eiginlega sólmyrkvi? 7. ágúst 2026 11:31 Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Fjölmennir ferðamannahópar hafa að undanförnu afbókað gistingu fyrir vestan sem ætluðu að dvelja þar til að upplifa almyrkva á sólu um miðjan ágúst. Starfsmann Vestfjarðastofu grunar að ferðaskrifstofur hafi frátekið gistingu í fleiri en einu landi sem tilheyrir almyrkvaslóðum og séu nú að taka ákvörðun; af eða á. 6. júlí 2026 12:55 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira
Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, segir það ekki rétt að börn yngri en tólf ára þurfi að nota gleraugu allan tímann á meðan almyrkvinn stendur yfir þann 12. ágúst. 7. ágúst 2026 09:46
Hvað er sólmyrkvi? Almyrkvar á sólu eru sjaldgæfir atburðir á hverjum stað á jörðinni, þar sem skugginn fellur aðeins á lítið takmarkað svæði. Fræðilega séð gætu almyrkvar lengst varað í 7 mínútur og 31 sekúndu en venjulega eru þeir ekki lengri en 2-4 mínútur. En hver er munurinn á almyrkva, deildarmyrkva og hringmyrkva? og hvað er eiginlega sólmyrkvi? 7. ágúst 2026 11:31
Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Fjölmennir ferðamannahópar hafa að undanförnu afbókað gistingu fyrir vestan sem ætluðu að dvelja þar til að upplifa almyrkva á sólu um miðjan ágúst. Starfsmann Vestfjarðastofu grunar að ferðaskrifstofur hafi frátekið gistingu í fleiri en einu landi sem tilheyrir almyrkvaslóðum og séu nú að taka ákvörðun; af eða á. 6. júlí 2026 12:55