Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar 8. ágúst 2026 09:02 Ný greining mennta- og barnamálaráðuneytisins á stöðu stærðfræðikennslu styður við það sem margir kennarar hafa lengi bent á. Of mikill tími fer í að búa til eigið námsefni vegna þess að námsgögn eru víða komin til ára sinna og stuðningur við kennslu er ekki nægur. [1] Greiningin fjallar um stærðfræði, en spurningin sem hún vekur nær mun lengra. Hversu víða í íslensku menntakerfi eru kennarar að fylla í eyður sem kerfið ætti sjálft að sjá um? Áhyggjur af stöðu menntamála eru ekki bundnar við innlenda umræðu. Í skýrslu OECD frá 2025 er bent á að mikilla umbóta sé þörf í íslensku menntakerfi og að staða barna af erlendum uppruna sé sérstakt áhyggjuefni. Þar er jafnframt vísað til slakrar stöðu íslenskra nemenda í alþjóðlegum samanburði og hvatt til markvissari umbóta í skyldunámi. [2] Við vitum hver vandinn er Í meira en tvo áratugi hefur verið kallað eftir markvissari uppbyggingu íslenskra námsgagna. Árið 2024 sameinuðust Samtök iðnaðarins, Samtök menntatæknifyrirtækja, Iðnú, Félag íslenskra bókaútgefanda, Kennarasamband Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Hagþenkir og Reykjavíkurborg um sameiginlegt ákall til stjórnvalda um aukna fjárfestingu í þróun og útgáfu fjölbreyttra námsgagna. Nágrannaþjóðir okkar verja margfalt hærra hlutfalli af útgjöldum til skólamála í þróun og endurnýjun námsgagna en Ísland. Hlutfallið hér á landi er um 0,4% í samanburði við 1,5- 4% hjá nágrannaþjóðunum. [3] Niðurstöður greiningar mennta- og barnamálaráðuneytisins eru skýrar. Um 76% grunnskólakennara þurfa reglulega að sækja viðbótarefni og 84% nota eigið kennsluefni.4Kennarar halda þannig kerfinu gangandi með eigin vinnu í stað þess að geta varið tíma sínum fyrst og fremst í kennslu og stuðning við nemendur. Þversögn sem við verðum að horfast í augu við Á sama tíma hefur íslenskt samfélag fjárfest í þróun fjölbreyttra íslenskra námsgagna og kennslulausna. Íslensk fyrirtæki, höfundar og frumkvöðlar hafa þróað vefbækur, gagnvirkt námsefni, lausnir til að halda utan um lestur, kennsluleiki, verkefnabanka, mats- og utanumhaldslausnir og fjölbreytt önnur námsgögn sem styðja við lestur, stærðfræði, upplestur, inngildingu, gæðastarf skóla og daglegt kennslustarf. Margar þessara lausna eru þróaðar af kennurum og sérfræðingum úr íslenska menntakerfinu. Þær hafa farið í gegnum faglegt mat, uppfylla kröfur um persónuvernd og hafa hlotið opinbera nýsköpunarstyrki til þróunar. En þegar kemur að innleiðingu blasir við önnur staða. Í mörgum tilvikum hafa skólar ekki fjármagn til að taka námsgögnin í notkun. Auk þess skortir samræmt verklag. Þótt lausnir hafi verið þróaðar í samræmi við persónuverndarlöggjöf og farið í ítarlegt matsferli geta sveitarfélög farið fram á nýtt mat eða viðbótarúttektir áður en þær eru teknar í notkun. Það skapar tvíverknað, kostnað og tafir. Þetta vekur eðlilega upp spurningar. Ísland starfar samkvæmt sömu persónuverndarlöggjöf og önnur ríki á Evrópska efnahagssvæðinu, en engu að síður virðist innleiðing íslenskra námsgagna og kennslulausna oft flóknari og tímafrekari en nauðsynlegt er. Á sama tíma geta sömu lausnir átt greiðari leið inn á erlenda markaði en inn í íslenskar skólastofur. Þetta er þversögn sem erfitt er að horfa fram hjá. Samfélagið fjárfestir í þróun lausna sem eiga að efla menntun, en þegar kemur að því að koma þeim í notkun skortir oft bæði fjármögnun og samræmda innleiðingu. Afleiðingin er sú að kennarar fá ekki þau verkfæri sem þeir þurfa, álag eykst og nemendur missa af þeim tækifærum sem vönduð íslensk námsgögn geta skapað. Brúum bilið Guðbjörg Íris Atladóttir, kennari við Rimaskóla, dró kjarnann í áskorun kennara skýrt fram á fyrstu málstofunni „Íslensk námsgögn – hvað er til?“ árið 2024. Hún lýsti því hvernig kennarar þurfi á hverjum degi að samræma kröfur aðalnámskrár, sífellt fjölbreyttari nemendahópa og það námsefni sem stendur til boða. Nemendur eru ólíkir, fleiri hafa íslensku sem annað mál og þörfin fyrir fjölbreytt, aðgengilegt og inngildandi námsefni hefur aldrei verið meiri. Samt er framboðið takmarkað og biðin eftir nýju námsefni oft löng eða allt að 20 ár. Í lok erindisins sagði hún að sýningin á íslenskum námsgögnum hefði verið afar gagnleg. Þar hefði hún séð fjölmargar lausnir sem gætu stutt kennslu og mætt ólíkum þörfum nemenda. En hún bætti við að hún gæti ekki tekið þær í notkun. Svo hún er enn að bíða. Þessi saga dregur saman stöðuna. Lausnirnar eru til. Þekkingin er til. Viljinn er til staðar. En bilið á milli þróunar og notkunar er enn of stórt. Við þurfum ekki aðeins að þróa fleiri íslensk námsgögn. Við þurfum að tryggja að þau komist í hendur kennara og nemenda. Skólar þurfa raunhæfa möguleika til að kaupa, innleiða og nýta fjölbreytt námsgögn hvort sem um er að ræða námsbækur, vefbækur, gagnvirkt efni, kennsluleiki eða önnur verkfæri sem styðja við fjölbreytt nám. Annars verður nýsköpun aðeins vel heppnað þróunarverkefni sem nær aldrei til þeirra sem henni er ætlað að þjóna. Kennarar eiga að geta einbeitt sér að kennslu, ekki að því að endurskapa námsgögn sem þegar eru til. Nemendur eiga að hafa jafnan aðgang að vönduðum íslenskum námsgögnum, óháð sveitarfélagi eða fjárhag skóla. OECD bendir á að framtíðarsamkeppnishæfni Íslands ráðist ekki síst af gæðum menntakerfisins. [5] Það markmið næst ekki án þess að fjárfesta í þeim innviðum sem kennslan byggir á. Námsgögn eru ekki aukaatriði heldur hluti af grunninnviðum menntakerfisins. Málstofan og sýningin „Íslensk námsgögn – hvað er til?“ verður haldin í þriðja sinn 13. ágúst næstkomandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þar munu hátt í 30 aðilar kynna fjölbreytt íslensk námsgögn, allt frá hefðbundnum námsbókum til gagnvirkra stafrænna kennslulausna, og ræða hvernig hægt er að efla þróun þeirra og umfram allt brúa bilið milli nýsköpunar og notkunar í skólum. Málstofan er öllum opin og eru kennarar, skólastjórnendur, foreldrar, fyrirtæki, stjórnvöld og aðrir áhugasamir hvattir til að taka þátt í umræðunni. Málstofunni verður streymt. Höfundur er sérfræðingur í mennta- og mannauðsmálum hjá Samtökum iðnaðarins. Heimildir Mennta- og barnamálaráðuneytið (2026), Greining á stöðu námsefnis í stærðfræði í grunn- og framhaldsskólum. OECD (2025), OECD Economic Survey: Iceland 2025. Íslensk námsgögn, islensknámsgögn.is. Mennta- og barnamálaráðuneytið (2026), Greining á stöðu námsefnis í stærðfræði í grunn- og framhaldsskólum. Könnun meðal 663 grunnskólakennara og 89 framhaldsskólakennara. OECD (2025), OECD Economic Survey: Iceland 2025. Sjá einnig umfjöllun RÚV, 26. júní 2025, „OECD skýrsla: Staða barna innflytjenda á Íslandi er sérstakt áhyggjuefni.“ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Grunnskólar Mest lesið Halldór 08.08.26 Halldór Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt Skoðun Skoðun Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Skoðun Draugasögur nútímans Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar