„Spila ekki oft sem framherji en þegar ég geri það þá skemmti ég mér yfirleitt“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 7. ágúst 2026 20:57 Emma Nicole Phillips skoraði fjögur mörk fyrir Grindavík/Njarðvík í kvöld. Vísir/Stefán Marteinn Grindavík/Njarðvík mætti ÍBV í 14. umferð Bestu deild kvenna í kvöld á gervigrasinu við Nettóhöllina í Njarðvík. Emma Nicole Phillips stal senunni í kvöld en hún skoraði öll fjögur mörk Grindavík/Njarðvíkur gegn ÍBV í 4-2 sigri. „
Þetta var ekki okkar fallegasti leikur en við sóttum sigur,“ sagði Emma Nicole Phillips, leikmaður Grindavíkur/Njarðvíkur, sem skoraði fjögur mörk fyrir sitt lið í kvöld. „Þetta var klárlega liðsframmistaða og ég er mjög stolt af öllum“ Emma Nicole Phillips skoraði öll mörk Grindavíkur/Njarðvíkur í kvöld í fyrri hálfleik eða fjögur talsins. „Ég spila ekki oft sem framherji en þegar ég geri það þá skemmti ég mér yfirleitt. Ég treysti því sem Gylfi segir og stillir mér upp þarna frammi. Við áttum nokkrar góðar fyrirgjafir og við unnum vel fyrir þessu saman“ „Ég myndi ekki segja að þetta hafi verið endilega einstaklingsframmistaða því það var klárlega liðsheildin sem skilaði þessu og ég er mjög stolt af öllum“ Aðspurð hvað það var sem skildi á milli liðanna vildi Emma meina að Grindavík/Njarðvík hefðu viljað þetta meira. „Ég held að við höfum bara viljað þetta meira. Í fyrri hálfleik áttum við góða frammistöðu að spila eins og við viljum spila. Þetta varð smá skappt þarna undir restina en þannig er það bara stundum“ „Ég held að við höfum bara snúið bökum saman og spiluðum fyrir hvor aðra og stundum er það allt sem þú þarft til þess að ná að berjast aðeins meira“ Þrátt fyrir góða stöðu í hálfleik var Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur ekkert sérstaklega sáttur. „Hann var ekkert svo ánægður með okkur og við áttum kannski ekki okkar bestu frammistöðu í dag en stundum er fótboltinn bara þannig og við urðum bara að berjast áfram“ Grindavík/Njarðvík er í þéttum pakka í baráttu um að vera í efri hlutanum þegar deildin skiptist svo þessi sigur var mikilvægur. „Ég held að þetta hafi verið mjög mikilvægt og ég held að við höfum þurft á þessu að halda. Við verðum að halda þessu áfram og reyna að tengja saman inn í næstu leiki líka“ Þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir er Grindavík/Njarðvík núna í góðri stöðu og hefur Emma Nicole Phillips trú á því að þær geti endaði í efri hlutanum. „Já, ég held það. Við erum með frábæran hóp, frábæra þjálfara og allt í kringum liðið er frábært. Ég held að við séum á góðum stað“ Aðspurð um það í lokin hvort hún ætti von á því að spila oftar upp á topp í sumar sagði Emma Nicole að það væri allt í höndum Gylfa þjálfara að ákveða það. „Það veltur allt á Gylfa, við sjáum til. Mér finnst hann stundum klikkaður en hann hefur yfirleitt rétt fyrir sér,“ sagði Emma Nicole Phillips.
UMF Grindavík UMF Njarðvík Besta deild kvenna Fótbolti Mest lesið Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Selfyssingar syrgja Sport Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Handbolti Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Noregur - Danmörk 3-2 | Fyrsti sigurinn á Dönum í 26 ár Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Handbolti Fleiri fréttir Klopp og Xavi sættust á stig „Við erum Haukar og við horum alltaf bara á toppinn“ Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Sigurður Dan skellti í lás og Stjarnan valtaði yfir Fram Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Martin frábær í sigurleik Noregur - Danmörk 3-2 | Fyrsti sigurinn á Dönum í 26 ár Kósovó - Írland 1-0 | Heimir og félagar byrja á tapi í Kosovo Ókeypis að sjá vonarstjörnur Íslands og Frakklands Landsliðin flúðu haustlægðina Mætir Haaland eftir að hafa þjálfað hann 16 ára Loksins fótbolti á innipúkadegi Uppsagnir hjá BBC og verkföll möguleg „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Dregið í bikarnum: Meistararnir fá gesti úr Garðabæ Sjáðu Þorstein kynna hópinn fyrir HM-leiki við Króata „Meira en tvö stig undir“ Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Ljót meiðsli og ælt á völlinn Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Grip ársins? „Þetta er út í hött“ George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Sjá meira