Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Kjartan Kjartansson skrifar 10. ágúst 2026 08:41 Vopnasysturnar Giorgia Meloni (t.v.) og Mette Frederiksen (t.h.) á góðri stundu. Facebook-síða Mette Frederiksen Forsætisráðherrar Danmerkur og Ítalíu segjast ætla að standa vörð um kristna menningararfleið Evrópu og krefjast þess að innflytjendur virði þau gildi í sameiginlegri yfirlýsingu. Þeir vilja vísa fleiri innflytjendum á brott og halda hælisleitendum utan álfunnar.
Þær Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, birtu sameiginlega yfirlýsingu um innflytjendamál. Þær stóðu nýlega að bréfi til Evrópusambandsins eftir að hópur fólks braut sér leið inn í Ceuta, spænskt yfirráðasvæði í Marokkó á dögunum. Í yfirlýsingunni segjast þær stöllur báðar viðurkenna „kristna menningararfleið“ Evrópu og vilja standa vörð um hana. „Við ætlumst til þess að fólk sem kemur til landa okkar og vilji gera Evrópu að heimili sínu virði evrópsk gildi og þröngvi ekki sínum lifnaðarháttum sem við kærum okkur ekki um upp á okkur,“ segir í yfirlýsingunni. Vilja fleiri brottvísanir og móttökustöð Danska ríkisútvarpið segir þó engar nýjar tillögur um innflytjendamál að finna í yfirlýsingunni. Þær Frederiksen og Meloni ítreki fyrri kröfur sínar um brottvísanir á innflytjendum sem brjóti af sér og móttökustöð fyrir hælisleitendur utan Evrópu. Að nafninu til eru Frederiksen, sem er leiðtogi danskra jafnaðarmanna, og Meloni, sem leiðir fjarhægriflokkinn Bræðralag Ítalíu, hvor á sínum enda pólitíska litrófsins. Þær eiga þó margt sameiginlegt í málefnum útlendinga en danskir jafnaðarmenn hafa lengi rekið eina hörðustu innflytjendastefnu í Evrópu. Frederiksen segir sjálf í færslu á Facebook að sumum kunni að koma á óvart hversu náið samband þeirra Meloni er. Þær séu enda alls ekki sammála um allt. „Við erum einu tveir kvenþjóðarleiðtogarnir í Evrópusambandinu. Önnur okkar stýrir stóru landi í suðri, hin litlu landi í norðri. En við stöndum saman í að vilja passa upp á Evrópu,“ skrifar Frederiksen.
Danmörk Ítalía Innflytjendamál Trúmál Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira