Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 10. ágúst 2026 22:16 Björgunarsveitir fá Norðausturlandi, frá Akureyri að Kópaskeri, voru boðaðar út vegna slyssins. Slysavarnafélagið Landsbjörg Síðdegis í dag voru björgunarsveitir á Norðausturlandi og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kallaðar út vegna ferðamanns sem hafði hrasað við göngu við Hafragilsfoss. Á nánast sama tíma barst tilkynning um annan ferðamann sem hafði ökklabrotnað í Hrútagili í Skaftafelli og var þyrlunni fyrst beint þangað.
Annar ferðamaðurinn hafi hrasað illa á göngu við Hafragilsfoss skammt frá Dettifossi. „Ljóst var í upphafi að nokkuð verkefni væri að koma sjúkling úr gilinu sem hann var í og var jafnframt óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslu í verkefnið,“ segir í tilkyninngu frá Slysavarnarfeáginu Landsbjörg. Björgunarsveitir frá Reykjadal, Laugum, Húsavík, Kópaskeri, Mývatni og Akureyri hafi verið kallaðar út að Hafragilsfossi og voru fyrstu björgunarsveitarliðar komnir á vettvang um fimmleytið síðdegis í dag. Ungur ferðamaður slasaðist á fæti á göngu við Hafragilsfoss.Slysavarnafélagið Landsbjörg „Slysstaður var undir háum klettum í nokkuð brattri brekku og þar fyrir ofan var önnur brekka upp á brún, þangað sem ökutæki komust. Sjúklingi var komið fyrir í börum og hann svo hífður upp klettabeltið beint ofan við slysstað, en þar fyrir ofan var hægt að koma sexhjóli.“ Maðurinn var hífður upp úr gilinu og á klettabelti fyrir ofan slysstað á sjúkrabörum.Slysavarnafélagið Landsbjörg Klukkan hálfátta hafi manninum verið komið upp á klettabeltið en þar beið hans sjúkrabíll sem flutti hann til aðhlynningar á sjúkrahúsið á Akureyri. Aðgerðum hafi lokið á níunda tímanum í kvöld. Samtímis hafi annar ferðamaður í Hrútagili í Skaftafelli verið hífður upp um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar en gilið er erfitt yfirferðar með sjúkrabörur. Björgunarsveitin Kári í Öræfum og bráðaviðbragð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands sinntu manninum en aðgerðum á svæðinu lauk rétt fyrir klukkan níu í kvöld.
Björgunarsveitir Þingeyjarsveit Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Sjá meira