Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Kjartan Kjartansson skrifar 13. ágúst 2026 08:46 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, segir frjálslynda og alþjóðasinnaða rödd flokks síns skipta enn meira máli ef meirihluti hafnar aðildarviðræðum við ESB. Vísir/Anton Brink Utanríkisráðherra telur pólitískt líf sitt og flokks síns ekki að veði í þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB. Rödd Viðreisnar verði enn mikilvægari ef aðildarviðræðum verður hafnað.
Skoðanakannanir benda til þess að kjósendur skiptist í tvær álíka stórar fylkingar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu sem fer fram 29. ágúst. Margir hafa þó enn ekki gert upp hug sinn. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, sagðist í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær ekki telja að hún og flokkurinn ættu pólitískt framhaldslíf sitt undir því að viðræður yrðu samþykktar. Henni þætti skrýtið ef refsa ætti flokknum fyrir að standa við loforð sitt um að halda þjóðaratkvæðagreiðsluna. Þvert á móti sagðist hún telja að hlutverk flokksins efldist ef nei yrði ofan á. „Þá skiptir máli að frjálslynd rödd, eins og Viðreisn, alþjóðasinnuð rödd, eins og Viðreisn, að hún heyrist. Af því að ég er smeyk við ákveðna einangrunarhyggju sem að mér finnst vera allt í einu blossuð upp, ekki síst á meðal svona þessara últrahægriflokka sem að eru hér á Íslandi,“ sagði Þorgerður Katrín. Evrópusambandsaðild væri heldur ekki ekki markmiðið í sjálfu sér heldur velsæld og lífsgæði Íslendinga, aðgangur þeirra að opnum mörkuðum og að þeir væru þátttakendur í öflugu alþjóðasamstarfi. „Ef það verður nei, þá förum við bara aðra leið en þá verður hún þyngri,“ sagði utanríkisráðherrann. Heldur áfram í ríkisstjórn Spurð sérstaklega hvort hún íhugaði stöðu sína ef viðræðum yrði hafnað sagðist Þorgerðu Katrín að sjálfsögðu halda áfram í ríkisstjórn og að hún virði þjóðarviljann. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokks, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, eru bæði á móti því að ræða við ESB um aðild.Vísir „Ég sakna þess að stjórnarandstaðan tali ekki jafnskýrt og ég er bara alls ekki að ætlast til þess ef að þjóðin segir já að Sigmundur Davíð eða Guðrún Hafsteinsdóttir, sem bæði er vel að merkja að hafa farið á svig við eigin skoðanir fyrri tíðar, að þau segi af sér,“ sagði ráðherrann. Ef niðurstaðan verður já Utanríkisráðherrann fór yfir hvað gerðist daginn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Ef meirihluti greiddi atkvæði með viðræðum sagði Þorgerður Katrín að eftir að stjórnvöld tilkynntu ESB um vilja íslensku þjóðarinnar yrði hafist handa við að móta samningsafstöðu Íslands. Síðast hafi um tvö hundruð manns komið að því að móta samningsafstöðu Íslands. Nú yrði haft samráð við helstu hagsmunaaðila, þar á meðal útvegsmenn, bændur, atvinnurekendur, verkalýðshreyfinguna og fleiri. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS. Utanríkisráðherra segir að hagsmunaaðilar á borð við útvegsmenn verði kallaðir að borðinu ef til viðræðna við ESB kemur.Vísir/Ívar Þorgerður Katrín benti á að hún kæmi ekki sjálf til með að leiða samninganefnd Íslands. „Heldur munum við fá öfluga aðila sem hafa reynslu af samningum og eru flinkir í svona viðræðum og standa vel og fast á verði um hagsmuni Íslands,“ sagði ráðherrann. Viðræður gætu staðið yfir í eitt og hálft ár þótt það gæti tekið lengri tíma að ganga formlega í sambandið ef aðild yrði samþykkt í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. Ef niðurstaðan verður nei Yrði nei ofan á sagði Þorgerður Katrín að þá lægi alveg fyrir að ríkisstjórnin héldi ekki áfram með aðildarferli. Fyrsta skref hennar yrði að ráðfæra sig við utanríkismálanefnd Alþingis. Í framhaldinu yrði tekin sameiginleg ákvörðun um hvernig unnið yrði úr niðurstöðunni. „Ég mun alltaf fara með þetta fyrir þingið og eiga samtal við þingið. Ég mun ekki fara bakdyramegin að neinu,“ sagði Þorgerður Katrín. Að hennar mati þyrfti þingið að ákveða sérstaklega að draga aðildarumsókn Íslands formlega til baka. Það sé ennfremur skilningur Evrópusambandsins. „Það verður ekki gert með einhverju pukri eins og ríkisstjórnin gerði 2013 til 2016,“ sagði Þorgerður Katrín og vísaði til ríkisstjórnar Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar, þáverandi forsætisráðherra sem stöðvaði aðildarviðræðurnar án þess að draga umsóknina formlega til baka. Fara fram með ýtrustu kröfur Spurð sérstaklega út í samningamarkmið í sjávarútvegi sagði Þorgerður Katrín að þau snerust um sérstöðu Íslands og sjálfstjórnarvald í sjávarútvegsmálum. Benti hún á að sameiginleg fiskveiðistefna ESB lyti að sameiginlegri landhelgi og fiskistofnum en landhelgi Íslands lægi aftur á móti ekki að neinum öðrum ESB-ríkjum. „Ég ætla ekkert að fara að semja við sjálfa mig hér í beinni útsendingu. Evrópusambandið, ef þið eruð að hluta, sem þið eruð örugglega að gera, þið vitið það að við munum fara fram með okkar ýtrustu kröfur og það er eins gott að þið kæru Evrópusinnar og framkvæmdastjórn verðið tilbúin.“ Sterkari samningsstaða ef munurinn er lítill Ef mjótt verður á munum í atkvæðagreiðslunni telur Þorgerður Katrín að það geti gagnast Íslandi í samningaviðræðum við Evrópusambandið. „Þetta er kannski bara þrýstingur á Brussel að koma mjög til móts við þau sjónarmið ef þau vilja fá okkur inn á annað borð. Ég hef margsagt það að við erum í gríðarlega sterkri samningsstöðu,“ sagði ráðherrann.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Reykjavík síðdegis Mest lesið Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Erlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Fleiri fréttir Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Sjá meira