Umferð um Flókalund 430 prósentum meiri en vanalega Lovísa Arnardóttir skrifar 13. ágúst 2026 15:32 Töluverð umferð var við Flókalund í gær vegna sólmyrkvans. Umferðarstýring var á hluta Vestfjarða. Vísir/Vilhelm Umferð um Flókalund á Vestfjörðum var 430 prósentum meiri en vanalega. Á sama tíma jókst umferð aðeins um 1,5 prósent á Strandarheiði og var minni en á venjulegum degi við Gauksmýri. Töluverð umferð var á Vesturlandi og Vestfjörðum í gær vegna almyrkva síðdegis.
G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að á umferðarmeiri vegum hafi verið sáralítil aukning og engin metumferð en það sé líklega vegna þess að hún dreifðist yfir nokkra daga, sérstaklega á dagana í aðdraganda sólmyrkvans. „ En umferðin á þeim vegum þar sem umferð er alla jafna ekki mikil hún var mun meiri en venjulega. Þess vegna alveg tvöfalt til fjórfalt venjuleg umferð, en samt þannig séð ekki mikil umferð,“ segir hann. Í samanburði á nokkrum stöðum á svæðinu má sjá að munur var verulegur eftir því hvert var litið. Miðað er við „venjulegt ástand“ sem er þá meðalumferð nokkra virka daga fyrir ári síðan og svo umferð í gær. Flókalundur: Aukning miðað við venjulegt ástand (normalástand): 430% Umferðarmagn á klst. á sólmyrkvadegi: Lítið (nær þó að fara upp í meðalumferð á bilinu 19-20). Umferð um Flókalund venjulega og á sólmyrkvadegi í gær. Eins og sést var töluverður toppur eftir að sólmyrkva lauk. Vegagerðin Svínadalur: Aukning miðað við venjulegt ástand: 293% Umferðarmagn á klst. á sólmyrkvadegi: Mjög lítið. Umferð um Svínadal venjulega og á sólmyrkvadegi í gær. Vegagerðin Eiðhús: Aukning miðað við venjulegt ástand: 179% Umferðarmagn á klst. á sólmyrkvadegi: Lítið (nær þó meðalumferð á bilinu 18–20). Umferð um Eiðhús venjulega og á sólmyrkvadegi í gær. Vegagerðin Seleyri: Aukning miðað við venjulegt ástand: 40% Umferðarmagn á klst. á sólmyrkvadegi: Lítið eða í meðallagi. Umferð um Seleyri venjulega og á sólmyrkvadegi í gær. Vegagerðin Strandarheiði: Aukning miðað við venjulegt ástand: 1,5% Umferðarmagn á klst. á sólmyrkvadegi: Lítið (miðað við 4 akreina veg). Umferð um Strandarheiði venjulega og á sólmyrkvadegi í gær. Vegagerðin Gauksmýri: Aukning miðað við venjulegt ástand: -2,65% Umferðarmagn á klst. á sólmyrkvadegi: Mjög lítið. Umferð um Gauksmýri venjulega og á sólmyrkvadegi í gær. Vegagerðin Mikill umferðarþungi var á Snæfellsnessvegi eftir sólmyrkvann í gær, einkum við vegavinnukafla á leiðinni. Pétur segir að þó að umferðin hafi verið þung hafi fjöldi bíla þar verið á við góðan föstudag. „Almennt gekk umferðin vel og þó að það væri aukning þá var þetta ekkert svakaleg umferð og dreifðist jafnt og þétt. Það var vinnusvæði á sunnanverðu Snæfellsnesi sem varð til þess að þar urðu tafir við Haffjarðará, það leystist úr því þegar frá leið,“ segir hann og að umferðin hafi í raun verið svipuð og um helgar og frekar lík því sem gerist á föstudegi. Nokkrar tafir mynduðust við einn kafla á Snæfellsvegi þar sem enn var vegavinna í gangi. Pétur segir að unnið hafi verið að verkefninu eins hratt og hægt var í sumar en það hafi verið viðhaldsvinna um land allt.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Vesturbyggð Snæfellsbær Umferð Umferðaröryggi Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Sjá meira