Ökumenn beðnir um að sýna aðgát vegna fýlsunga Áróra L Davíðsdóttir skrifar 13. ágúst 2026 21:09 Sjálfboðaliðar Fuglaverndar hjálpa fýlsungum sem þurfa aðstoð við að komast af vegum landsins. Fuglavernd Fýlsungatímabilið er hafið og ökumenn eru því beðnir um að sýna aðgát. Stundum drífi ungarnir ekki úr hreiðrum sínum út á sjó og lendi á vegum landsins.
Frá miðjum ágúst fram í miðjan september yfirgefa fýlsungar hreiðrin sín. Fuglavernd biðlar til ökumanna um að sýna fýlunum aðgát í Facebook-færslu. „Því miður rekast þeir oft á nýstárlegar og ónáttúrulegar hindranir á borð við skurði, girðingar og ekki síst hraða bílaumferð. Sumir fýlsungar lenda því miður á malbikuðum vegum sem setur þá í talsverða lífshættu því þar eiga þeir í hættu á að bílar keyri á þá,“ segir í færslunni. Talið er að fýlar reyni að lenda á ám en ruglist oft á þeim og malbikuðum vegum sem geti líkst ám úr lofti. Ökumenn haldi oft að þarna séu mávar á ferð sem fljúgi burt þegar bílar nálgast en fýlsungar eru oft of þungir til flugs. Fuglavernd „Oft eru þeir nokkuð feitir og pattaralegir ef foreldrunum hefur gengið vel að fóðra þá og þá eru vængirnir ekki alveg nógu sterkir til að bera þá á flugi.“ Mikið sé um fýla um Suðurlandsveg í kringum Mýrdal og undir Eyjafjöllum en þeir þurfi á tillitsemi ökumanna að halda og jafnvel aðstoð við að komast út á haf. Fýlar eignist að jafnaði bara eitt afkvæmi á ári og þegar þeir yfirgefi hreiðrið séu þeir á eigin vegum. „Það munar því miklu um hvern unga sem kemst á legg. Ef fýlsungarnir lifa af hættuförina úr hreiðri og út á sjó þá geta þeir þó orðið mjög langlífir og orðið allt að 60 ára gamlir,“ segir í færslunni. Hér má sjá myndband frá Kötlujarðvang um hvernig eigi að hjálpa fýlsungum.
Dýr Fuglar Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Sjá meira