Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug Eiður Þór Árnason skrifar 14. ágúst 2026 14:21 Flugvélar geta farið hraðar en þyrlur Landhelgisgæslunnar og flogið við erfiðari veðuraðstæður. Á hinn bóginn getur þyrla lent og tekið á loft á mun fleiri stöðum. Vísir/Viktor Freyr Kjarasamningar flugmanna við Norlandair hafa verið lausir í að nálgast tíu mánuði en flugfélagið sinnir meðal annars sjúkraflugi um allt land. Langt var milli aðila en samninganefndir hafa síðan færst nær markmiðum flugmanna, að sögn fulltrúa þeirra.
Sumarleyfi hafi tafið viðræður en þær séu nú að fara í gang á ný. Ótímabært sé að hafa áhyggjur af áhrifum mögulegs verkfalls á sjúkraflug. Þetta segir Davíð Smári Jóhannsson, formaður samninganefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna gagnvart Norlandair. Hann bindur vonir við að fundað verði í deilunni í næstu viku. Auk launa sé rætt um breytingar á vinnufyrirkomulagi og flugmenn Norlandair hafi mikinn áhuga á því að komast inn í fast vaktakerfi líkt og þekkist á spítölum og hjá slökkviliðum. Norlandair gerir út frá Akureyrarflugvelli og Reykjavíkurflugvelli. Vísir/Viktor Freyr Í dag sé vinnuskrá gefin út með tveggja vikna fyrirvara og flugmenn viti ekki hvernig vinnu þeirra verði háttað lengra fram í tímann. Davíð segir að þetta reyni sérstaklega á fjölskyldufólk og flugmenn óski þess að fá meiri fyrirsjáanleika. Aðspurður um gang viðræðna segir Davíð að „þær mættu ganga hraðar en það er allavega samtal í gangi.“ „Við funduðum síðast í byrjun júní og svo hafa aðeins tölvupóstar gengið á milli. Þannig að það er kannski ekki alveg stopp.“ Hátt í fimmtíu flugmenn Kjarasamningar flugmanna og Norlandair hafa verið lausir frá 1. nóvember en félagið er með sjúkraflug, áætlunarflug og leiguflug. „Norlandair sinnir mjög mikilvægu starfi uppi á Grænlandi, bæði fyrir vísindasamfélagið og danska herinn,“ segir Davíð. Norlandair og fyrirrennarar þess hafi til að mynda flogið fyrir danska herinn frá árinu 1975. Bæði hafi verið farið með hermenn og Danaprins. Nuuk er höfuðborg Grænlands.AP/Evgeniy Maloletka Norlandair gerir út frá Akureyri og Reykjavík og starfa þar alls 46 flugmenn, að sögn Davíðs sem starfaði lengi fyrir félagið. Allir flugmennirnir séu undir í kjaraviðræðunum. Davíð segir of snemmt að hafa áhyggjur af því að flugmenn sem sinni sjúkraflugi endi í verkfalli. „Við erum ekki komnir til sáttasemjara enn þá, þannig að við erum ekki komin þangað og sjúkraflugið er náttúrulega neyðarflug. Þannig að ég held að það sé ekki tímabært að fara að óttast eitthvað um það. Alls ekki.“
Flug Kjaramál Sjúkraflutningar Tengdar fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Sjúkraflugferðum hefur fjölgað umtalsvert á milli ára en slökkviliðsstjóri á Akureyri segir ástæðurnar vera margar. Það hafi hátt í níutíu flugferðir verið skráðar það sem af er liðnum júlímánuði, sem sé met, en gott veður víða um land, ferðamannastraumur og minni heilbrigðisþjónusta í boði á landsbyggðinni sé meðal þess sem valdi miklum fjölda ferða. Það sé nauðsynlegt að auka fjármagn til að tryggja góða þjónustu. 25. júlí 2026 18:07 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Sjá meira
Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Sjúkraflugferðum hefur fjölgað umtalsvert á milli ára en slökkviliðsstjóri á Akureyri segir ástæðurnar vera margar. Það hafi hátt í níutíu flugferðir verið skráðar það sem af er liðnum júlímánuði, sem sé met, en gott veður víða um land, ferðamannastraumur og minni heilbrigðisþjónusta í boði á landsbyggðinni sé meðal þess sem valdi miklum fjölda ferða. Það sé nauðsynlegt að auka fjármagn til að tryggja góða þjónustu. 25. júlí 2026 18:07