Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. ágúst 2026 09:58 Þessi mynd var tekin um klukkan tuttugu mínútur í níu. Aðsend Þriðja daginn í röð er afar löng röð í öryggisleitina á Keflavíkurflugvelli. Um tíma náði röðin út á langtímabílastæðin sem eru heldur langt frá innganginum að flugvellinum.
Fréttastofu barst ábending frá einum flugvallarstarfsmanni um að röðin væri orðin heldur löng núna í morgunsárið. Þetta væri þriðji morguninn í röð þar sem röðin í öryggisleitina væri svo löng. Áttu mynd af vettvangi? Veistu meira? Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fjallað var um það á Vísi að löng röð hefði myndast á flugvellinum á fimmtudag. Talið var að fjöldi ferðalanga sem komu hingað til lands til að sjá almyrkvann hefði verið á leið úr landi. „Við vissum að gærdagurinn og í fyrradag yrðu þungir,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, í samtali við fréttastofu. „Við vissum að það gæti orðið mögulega eitthvað svipað í dag og á morgun. Þetta snýr að þeim fjölda sem er að fara af landinu, það er óvenju mikill fjöldi vegna þeirra sem komu að fylgjast með almyrkvanum.“ Þrjú prósent bíði lengur en í korter Margir eigi flug á svipuðum tíma og séu því margir sem mæti á sama tíma. Dreifingin hafi verið aðeins betri í gær heldur en í dag. Samt sem áður gangi vel í dag og er öryggisleitin fullmönnuð. Hámarksbiðtíminn sé um 35 til 45 mínútur. „Það eru vissulega langar raðir en eftir það sem ég fékk að vita frá okkar fólki sem ég var að tala við gengur þetta smurt og er ekkert stopp.“ Guðjón setur sumarið í samhengi og segir að 92 prósent farþega sem hafi farið um flugvöllinn í sumar hafi ekki þurft að bíða í meira en tíu mínútur. Þá hafi 97 prósent beðið í innan við fimmtán mínútur. „Þrjú prósent hafa þurft að bíða lengur en í korter sem sýnir að þessir dagar eru sérlega þungir,“ segir Guðjón. Á sama tíma og margir komu til landsins til að sjá almyrkvann er einnig háannatími á flugvellinum. Röðin í dag náði um tíma að langtímabílastæðunum en er hún orðin eitthvað styttri. Gera má ráð fyrir því að röðin muni styttast þegar líður á daginn. Fréttin hefur verið uppfærð.
Keflavíkurflugvöllur Isavia Almyrkvi 12. ágúst 2026 Tengdar fréttir Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Töluverð röð er í öryggisleitina á Keflavíkurflugvelli samkvæmt ábendingum sem borist hafa fréttastofu. Fréttastofa náði tali af einum farþega sem var á hlaupum í gegnum flugvöllinn eftir klukkustundar bið. 8. ágúst 2026 08:04 Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Sjá meira
Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Töluverð röð er í öryggisleitina á Keflavíkurflugvelli samkvæmt ábendingum sem borist hafa fréttastofu. Fréttastofa náði tali af einum farþega sem var á hlaupum í gegnum flugvöllinn eftir klukkustundar bið. 8. ágúst 2026 08:04