Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. ágúst 2026 20:28 Helgi Guðjónsson er áfram duglegur að skora fyrir Víkinga úr bakvarðarstöðinni. Vísir/Diego Helgi Guðjónsson skoraði fyrsta mark Víkings er liðið vann sterkan 4-2 útisigur gegn FH og náði átta stiga forskoti í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld. „
Við fórum bara í grunngildin okkar og vildum reyna að ná okkar standard aftur upp,“ sagði Helgi í viðtali eftir leik. „Við vildum berjast og djöflast hver fyrir annan og við ætluðum að bæta okkur aðeins varnarlega í föstum leikatriðum, en það tókst ekki í dag. Sóknarlega vorum við flottir og bjuggum til fín færi. Við hefðum getað skorað meira, en ég er bara virkilega sáttur við að taka þrjú stig hérna í dag.“ FH-ingar voru þéttir varnarlega framan af leik og komu að mestu í veg fyrir að Víkingar sköpuðu sér almennileg færi, alveg þangað til Helgi kom boltanum í netið á 36. mínútu og jafnaði metin í 1-1. „Við svöruðum nokkuð hratt fyrir okkur eftir að hafa lent undir og náðum inn tveimur mörkum á stuttum tíma. Við gerðum það vel og það var virkilega mikilvægt að vera ekkert að draga það að ná að jafna leikinn.“ Eftir sigur kvöldsins og úrslit úr öðrum leikjum eru Víkingar nú með átta stiga forskot á toppi deildarinnar þegar alls eru átta leikir eftir. Helgi þvertekur þó fyrir það að leikmenn séu farnir að finna lyktina af Íslandsmeistaratitlinum. „Nei, alls ekki. Það eru átta leikir eftir þannig að það eru 24 stig í pottinum. Við erum ekkert farnir að pæla í þessu. Við tökum bara eldgömlu klisjuna um einn leik í einu og reynum að halda þessum átta stigum eða bæta í. Við reynum að klára þetta sem fyrst.“ Að lokum segir Helgi að Víkingur sé að finna taktinn sinn aftur eftir smá hikst í kringum Evrópuleiki liðsins. „Já, mér finnst það. Við áttum virkilega góðan leik á móti Thun og hefðum getað gert það einvígi meira spennandi og meiri hasar undir lokin. Mér finnst takturinn vera að koma betur og betur til okkar aftur og við erum að fá leikmenn eins og Hrannar og Svein Aron inn þannig ég held að við verðum sprækir í lok tímabils.“
Besta deild karla Víkingur Reykjavík FH Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira