Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Sindri Sverrisson skrifar 17. ágúst 2026 08:30 KR og Breiðablik skildu jöfn í fjörugum leik í Vesturbænum. vísir/Guðmundur Glæsileg mörk litu dagsins ljós í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld, þegar þrír leikir fóru fram í 19. umferðinni, og má sjá þau á Vísi.
Íslandsmeistarar Víkings náðu átta stiga forskoti á KR á toppi deildarinnar, með 4-2 endurkomusigri gegn FH í Kaplakrika. Glæsimark Gylfa Þórs Sigurðssonar, eftir frábæran undirbúning Skagamannsins Ármanns Inga Finnbogasonar, stóð þar upp úr en mörkin úr Krikanum má sjá hér að neðan. Á sama tíma gerðu KR og Breiðablik 3-3 jafntefli í mögnuðum leik á Meistaravöllum. Kristófer Ingi Kristinsson skoraði beint úr aukaspyrnu og kom Blikum í 2-0, þrátt fyrir að Halldór Snær Georgsson næði að verja vítaspyrnu á milli marka Kristófers, og Ágúst Orri Þorsteinsson kom Blikum aftur tveimur mörkum yfir rétt fyrir hálfleik, 3-1, með frábæru liðsmarki eftir að Eiður Gauti Sæbjörnsson hafði minnkað muninn með skalla. Snemma í seinni hálfleik jöfnuðu KR-ingar hins vegar metin þegar þeir skoruðu tvö mörk á minna en mínútu. Ástbjörn Þórðarson skoraði fyrra markið áður en markahæsti maður deildarinnar, Aron Sigurðarson, jafnaði metin með sínu sautjánda marki í sumar. Í Vestmannaeyjum fíflaði Haukur Andri Haraldsson varnarmenn ÍBV gjörsamlega upp úr skónum og kom ÍA yfir, í 3-1 sigri gestanna frá Akranesi. Haukur prjónaði sig í gegnum vörnina með frábærum hætti og var staðan 1-0 í hálfleik. Markús Páll Ellertsson jók forystuna með skoti utan teigs áður en Omar Sowe minnkaði muninn fyrir ÍBV. Eftir góða tilraun ÍBV til að jafna metin slapp Viktor Jónsson hins vegar einn fram og innsiglaði 3-1 sigur ÍA sem þar með hefur fengið 10 af síðustu 12 stigum mögulegum. Á laugardaginn var svo einn leikur á dagskrá, þar sem Eiður Orri Ragnarsson skoraði bæði mörk Keflavíkur í góðum 2-0 sigri gegn Þór á Akureyri. Fyrra markið var sérlega glæsilegt. Umferðinni lýkur í kvöld með tveimur spennandi leikjum þar sem KA-menn freista þess að toga Valsmenn niður í fallbaráttuna og Framarar gætu náð KR-ingum með sigri gegn Stjörnunni sem er í leit að sínum þriðja sigri í röð. Valur og Stjarnan eru nú í 7. og 8. sæti og þurfa stig í baráttunni við ÍA og Keflavík um sæti í efri hlutanum, áður en deildinni verður svo skipt upp eftir þrjár umferðir.
Besta deild karla FH Víkingur Reykjavík Breiðablik KR ÍA ÍBV Þór Akureyri Keflavík ÍF Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira