Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Lovísa Arnardóttir skrifar 18. ágúst 2026 06:45 Áætlað er að um þrjú til tíu prósent barna og um 2,5 til fimm prósent fullorðinna séu með ADHD. Á myndinni er kannabisplanta en drengurinn hafði reykt kannabis áður en greiningarferlið hófst. Vísir/EPA Kærunefnd vöru og þjónustukaupa vísaði í sumar frá máli foreldris sem fór með barnið í ADHD-greiningu en fékk hana ekki vegna vímuefnaneyslu barnsins. Barnið fékk þannig ekki greininguna og foreldrið þess ekki endurgreiðslu. Nefndin taldi málið utan valdssviðs síns. Fram kemur í úrskurði nefndarinnar að þeim hafi 10. júní borist kvörtun vegna málsins þar sem foreldrið krafðist þess að greiningaraðili myndi endurgreiða honum 310.000 krónur eða til vara að ljúka greinarferli sonar síns. Fram kemur að foreldrið hafi leitast eftir því að fá greiningu fyrir barn sitt haustið 2025 og að heildargreiðsla vegna greiningar hafi numið 310.500 krónum. Sonur hans hafi farið í skimunarviðtal og viðtal hjá sálfræðingi á stofunni en í mars var foreldrinu svo tilkynnt að ferlinu væri lokið án þess að eiginleg ADHD-greining hefði farið fram. Ekki upplýst um áhrif neyslunnar Ástæðan var sú að drengurinn hefði upplýst um kannabisneyslu sem hefur áhrif á greiningu ADHD. Foreldrið telur að ekki hafi verið upplýst að kannabisneysla síðustu sex mánuði fyrir greiningu myndi hafa áhrif og að greiningaraðilinn hafi þannig vanrækt upplýsingaskyldu sína. Í úrskurði nefndar segir að greiningarfyrirtækið bjóði upp á ADHD-greiningar frá lækni með viðeigandi sérhæfingu og sé því seljandi heilbrigðisþjónustu. Ágreiningur lúti að því hvort að fyrirtækið hafi veitt fullnægjandi upplýsingar um þær takmarkanir sem giltu um greiningarferli og hvort að þau hafi mátt hætta greiningarferli vegna þess að barnið neytti kannabisefna án þess að endurgreiða foreldrinu eða fresta því. Kærunefndin bendir á í úrskurðinum að gildissvið laga um úrskurðaraðila á sviði neytendamála nái ekki til heilbrigðisþjónustu óháð því hvort ágreiningur varði framkvæmd þjónustunnar eða aðra þætti hennar, líkt og upplýsingagjöf seljanda við kaup á þjónustunni eða óskýra skilmála. Utan valdsviðs Þar að auki bendir kærunefndin á að ágreiningsefni málsins, það er ástæður fyrir stöðvun greiningarferlis og meintur skortur á upplýsingagjöf varnaraðila þar að lútandi,sé samofið þeirri heilbrigðisþjónustu sem aðilar sömdu um. „Fellur það því utan valdsviðs kærunefndarinnar,“ segir í úrskurðinum. Þar kemur einnig fram að niðurstaðan sé í samræmi við úrskurðarvenju kærunefndarinnar og er vísað til fyrri úrskurða frá árinu 2022 og 2023. „Með vísan til alls framangreinds varðar ágreiningur málsins heilbrigðisþjónustu í skilningi a. liðar 2. mgr. 3. gr. laga nr. 81/2019 og telur kærunefndin sér því ekki unnt að taka afstöðu til ágreinings aðila. Kvörtun sóknaraðila er því vísað frá nefndinni.“ Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið. ADHD Börn og uppeldi Heilbrigðismál Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira
Fram kemur í úrskurði nefndarinnar að þeim hafi 10. júní borist kvörtun vegna málsins þar sem foreldrið krafðist þess að greiningaraðili myndi endurgreiða honum 310.000 krónur eða til vara að ljúka greinarferli sonar síns. Fram kemur að foreldrið hafi leitast eftir því að fá greiningu fyrir barn sitt haustið 2025 og að heildargreiðsla vegna greiningar hafi numið 310.500 krónum. Sonur hans hafi farið í skimunarviðtal og viðtal hjá sálfræðingi á stofunni en í mars var foreldrinu svo tilkynnt að ferlinu væri lokið án þess að eiginleg ADHD-greining hefði farið fram. Ekki upplýst um áhrif neyslunnar Ástæðan var sú að drengurinn hefði upplýst um kannabisneyslu sem hefur áhrif á greiningu ADHD. Foreldrið telur að ekki hafi verið upplýst að kannabisneysla síðustu sex mánuði fyrir greiningu myndi hafa áhrif og að greiningaraðilinn hafi þannig vanrækt upplýsingaskyldu sína. Í úrskurði nefndar segir að greiningarfyrirtækið bjóði upp á ADHD-greiningar frá lækni með viðeigandi sérhæfingu og sé því seljandi heilbrigðisþjónustu. Ágreiningur lúti að því hvort að fyrirtækið hafi veitt fullnægjandi upplýsingar um þær takmarkanir sem giltu um greiningarferli og hvort að þau hafi mátt hætta greiningarferli vegna þess að barnið neytti kannabisefna án þess að endurgreiða foreldrinu eða fresta því. Kærunefndin bendir á í úrskurðinum að gildissvið laga um úrskurðaraðila á sviði neytendamála nái ekki til heilbrigðisþjónustu óháð því hvort ágreiningur varði framkvæmd þjónustunnar eða aðra þætti hennar, líkt og upplýsingagjöf seljanda við kaup á þjónustunni eða óskýra skilmála. Utan valdsviðs Þar að auki bendir kærunefndin á að ágreiningsefni málsins, það er ástæður fyrir stöðvun greiningarferlis og meintur skortur á upplýsingagjöf varnaraðila þar að lútandi,sé samofið þeirri heilbrigðisþjónustu sem aðilar sömdu um. „Fellur það því utan valdsviðs kærunefndarinnar,“ segir í úrskurðinum. Þar kemur einnig fram að niðurstaðan sé í samræmi við úrskurðarvenju kærunefndarinnar og er vísað til fyrri úrskurða frá árinu 2022 og 2023. „Með vísan til alls framangreinds varðar ágreiningur málsins heilbrigðisþjónustu í skilningi a. liðar 2. mgr. 3. gr. laga nr. 81/2019 og telur kærunefndin sér því ekki unnt að taka afstöðu til ágreinings aðila. Kvörtun sóknaraðila er því vísað frá nefndinni.“ Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið.
Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið.
ADHD Börn og uppeldi Heilbrigðismál Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira