Körfubolti

Yfir milljón í boði á nýrri ís­lenskri mótaröð

Aron Guðmundsson skrifar
Frá leik í Bónus deild karla á síðasta tímabili. Í 3x3 körfubolta eru aðeins þrír leikmenn inn á í hverju liði á sama tíma. 
Frá leik í Bónus deild karla á síðasta tímabili. Í 3x3 körfubolta eru aðeins þrír leikmenn inn á í hverju liði á sama tíma. 

Á laugardaginn kemur fer af stað ný körfuboltamótaröð í þrír á þrjá körfubolta sem hefur notið mikilla vinsælda víða um heim og meðal annars verið keppt í á Ólympíuleikunum. 

Skipuleggjendur mótaraðarinnar 3 á 3 óska nú eftir liðum á mótaröðina en ráðgert er að fyrsta mót hennar fari fram á laugardaginn kemur hér í Reykjavík en fyrsta tímabilið mun samanstanda af þremur mótum. 

Keppt er á hálfum velli og mun ein stigatafla gilda fyrir mótaröðina alla. Í verðlaunafé verða 1,4 milljónir íslenskra króna og mun meistaraliðið sjálft fá 800 þúsund krónur í sinn hlut. Liðið í öðru sæti fær 300 þúsund krónur og liðið í þriðja sæti 100 þúsund krónur. 

Leikið er eftir reglum FIBA þegar kemur á 3x3 körfubolta og munu dómarar á stuðnum úrskurða í öllum vafamálum. 

Nánar má lesa um mótið hér sem og skrá lið til leiks en þátttökugjaldið fyrir hvert lið er 40 þúsund krónur.

Dagskrá fyrstu mótaraðarinnar:

  • 22. ágúst - Menningarnótt í Reykjavík 
  • 5. september - Ljósanótt í Reykjanesbæ
  • 19. september - Nánar tilkynnt síðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×