Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu Bjarki Sigurðsson skrifar 17. ágúst 2026 12:02 Eiríkur Bergmann er prófessor í stjórnmálafræði. Vísir/Ívar Fannar Erfitt er fyrir kjósendur að átta sig á því hvað þeir eru að greiða atkvæði um þann 29. ágúst næstkomandi vegna upplýsingamengunar frá báðum fylkingum segir stjórnmálafræðingur. Þær tileinki sér báðar ákveðna anga popúlisma.
Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafa já og nei fylkingarnar sakað hvor aðra um lygar, hálfsannleik og vísvitandi upplýsingaóreiðu. Tólf dagar eru í að þjóðin gangi að kjörborðinu og umræðan við það að ná hápunkti. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir töluverða upplýsingamengun vera í kringum umræðu um atkvæðagreiðsluna. „Evrópusambandið er gríðarlega flókið fyrirbæri og hefur ekki verið í viðamikilli umræðu á Íslandi. Þannig það er hægt að fleygja mörgu fram sem ekki endilega stenst skoðun. Svo er engin sátt um það í samfélaginu hvað sé satt og rétt og hverjir hafi þekkinguna til að greina þar á milli. Þess vegna er gríðarlega mikið af hálfsannleik, rangindum og skökkum þáttum á floti í almannarýminu,“ segir Eiríkur. Það geri fólki erfiðara fyrir að átta sig á því hvað það er að greiða atkvæði um. „Þetta er allt öðruvísi kosning heldur en við erum vön þar sem lögmál umræðunnar eru miklu skýrari og augljósari vegna reynslunnar. Við höfum farið í gegnum þær svo oft áður að það er búið að leggja ákveðnar brautir í kringum umræðuna. Núna eru þessar brautir einfaldlega ekki til staðar. Það er augljóslega þannig að ákafir þátttakendur beggja vegna nýta sér þetta ástand til að rugla fólk í ríminu sínum málstað til framdráttar,“ segir Eiríkur. Eiríkur telur erlend áhrif hafa verið lítil sem engin. Hins vegar tileinki báðar fylkingar sér anga popúlisma. „Það er líka áhugavert að margt í þessari umræðu endurspeglar umræðuna sem átti sér stað í Bretlandi í aðdraganda Brexit-kosninganna fyrir tíu árum. Það er margt sem kallast á við þá umræðu sem var alls ekki á traustum grundvelli,“ segir Eiríkur.
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Brexit Tengdar fréttir Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram þann 29. ágúst. Fylgst verður með nýjustu tíðindum í aðdraganda atkvæðagreiðslu í Evrópuvaktinni hér að neðan. 17. ágúst 2026 10:39 Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira
Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram þann 29. ágúst. Fylgst verður með nýjustu tíðindum í aðdraganda atkvæðagreiðslu í Evrópuvaktinni hér að neðan. 17. ágúst 2026 10:39