Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 17. ágúst 2026 19:57 Fall í notkun á Akranesi sést vel á þessum tölum frá Veitum. vísir/hjalti Afgerandi fall var í notkun á köldu vatni á meðan sólmyrkvinn gekk yfir í síðustu viku. Tölur frá Veitum sýna að fólk hélt í sér og eru þær ágætis vísbending um að þorri fólks hafi fylgst með atburðinum.
Þegar við sturtum niður, fáum okkur vatnsglas eða förum í sturtu er notkunin skráð hjá Veitum. Þegar sólmyrkvinn gekk yfir rétt fyrir klukkan sex á miðvikudaginn síðasta varð algjört fall í notkun á köldu vatni, raunar svo mikið að hún fór niður fyrir hefðbundna næturnotkun. „Það eru alveg skýr mörk frá klukkan 17:30 og til klukkan 18:00, akkúrat þegar sólmyrkvinn kemur yfir að þá eru greinilega miklu færri að sturta niður, miklu færri að skrúfa frá krönunum og svona. Þetta fer alveg niður fyrir næturnotkunina, það er ótrúlega merkilegt að sjá það,“ sagði Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna. Hér fyrir neðanb má sjá klippuna úr sjónvarpsfréttum Sýnar. Á myndinni efst í fréttinni sést að notkunin féll töluvert á Akranesi akkúrat á meðan sólmyrkvinn gekk þar yfir. Sjáiði afgerandi tölur út frá búsvæðum? „Já á Akranesi sér maður þetta sérstaklega vel en það er bara vegna þess að notkunin er þannig. En þetta sést líka í Reykjavík.“ Fall í notkun á vatni gefur oft vísbendingu um að mikið standi til en þekkt er að vatnsnotkun falli þegar landsliðiðsleikir fara í vítaspyrnukeppni eða þegar Ísland flytur framlag sitt í Eurovision. Þannig þetta er ágætis vísbending eða heimild fyrir því að margir hafi verið úti? „Jú ég myndi halda það klárlega. Ég held að lang flestir hafi verið úti að horfa.“
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Vatn Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira