Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. ágúst 2026 11:00 Chris Brazell tók við Val þegar Hermann Hreiðarsson var látinn taka pokann sinn. Valsmenn hafa spilað sex deildarleiki undir stjórn Brazells; unnið einn, gert eitt jafntefli og tapað fjórum. vísir/anton Albert Ingason furðaði sig á því hversu jákvæður Chris Brazell, þjálfari Vals, var eftir jafnteflið við KA í gær. Hann segir Valsliðið ekki hafa spilað vel síðan að Brazell tók við því og segir að það gæti lent í fallbaráttu.
Valur lenti tvisvar sinnum tveimur mörkum undir gegn KA á heimavelli í Bestu deild karla í gær en kom til baka og náði í stig. Lokatölur á Hlíðarenda, 4-4. Albert segir að KA-menn geti nokkuð vel við úrslitin unað en viðtalið við Brazell eftir leikinn stakk hann. „Með Val, ég meina, kommon samt sko. Þú talar um pressuna en ofan á það var svo mikið af fáránlegum sendingum hjá þeim. Það var svona eins og þeir nenntu þessu ekki fyrr en þeir fundu smá svona: Heyrðu, við fáum bara færi þegar við viljum. Og eftir að Hólmar [Örn Eyjólfsson] skoraði: Heyrðu, ókei, við erum alveg hérna og byrjuðu að setja boltann aðeins inn fyrir þá,“ sagði Albert í Stúkunni í gær. Klippa: Stúkan - umræða um Brazell og stöðuna á Val „En alltaf er Brazell svo sáttur með allt. Þrautseigja, karakter. KA-liðið er eitt lélegasta lið í deildinni. Þá er ég að tala um gengið þegar það kemur inn í þennan leik, það vantar stóra pósta og Valur er á heimavelli. Þú getur ekki verið þjálfari Vals svona leik eftir leik. Þetta eru hvað, níu leikir sem hann er búinn að vera með liðið núna, ef þú tekur Evrópu með. Þetta er einn góður leikur. Ég verð að gefa honum góð úrslit á móti Mostar. En þá var [Frederik] Schram náttúrulega með geðveika frammistöðu og Tryggvi [Hrafn Haraldsson]. En ef við horfum á alla leikina, þá er þetta hvað, sigurinn á móti Breiðabliki í síðustu umferð? Annars er þetta bara búið að vera svo lélegt.“ Eiga erfiða leiki eftir Baldur Sigurðsson segir að lið eins og Stjarnan og Valur geti alveg dregist niður í fallbaráttuna á lokaspretti tímabilsins. „Þeir geta alveg verið búnir að sogast í þessa fallbaráttu sem ég var búinn að afskrifa fyrir nokkrum umferðum. Þannig að þetta er ekkert svo langt á milli. Það er ekkert langt í þetta,“ sagði Baldur og Albert tók undir með honum. „Eins og Hallgrímur [Jónasson, þjálfari KA] talaði um fyrir leikinn, svo ég vitni aftur í hann, þá ætlum við að sýna að þessi leikur skiptir okkur meira máli heldur en Val. Valur þarf að átta sig á því að þeir geta alveg farið í fallbaráttu. Síðustu þrír leikirnir þeirra eru ÍA heima, sem er á góðu skriði, Víkingur úti og Keflavík úti. Ég sé ekkert Val, eins og þeir spiluðu í þessum leik og hafa verið að spila í deildinni í síðustu leikjum eða bara eftir að Brazell tók við, taka mörg stig úr þessum leikjum. Þá eru þeir bara komnir í bullandi fallbaráttu. Fyrir mér var þetta stór leikur fyrir bæði liðin og allavega í fyrri hálfleik sást það ekki á Valsliðinu.“ Næsti leikur Vals er gegn Íslandsmeisturum Víkings á útivelli á sunnudaginn kemur. Valsmenn eru í 7. sæti deildarinnar með 23 stig, tveimur stigum á eftir Keflvíkingum sem eru í 6. sætinu en sjö stigum frá fallsæti. Umræðuna úr Stúkunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla Valur Stúkan Tengdar fréttir Kveðja Bjarna með miklum söknuði Valsmenn hafa nú staðfest brotthvarf Bjarna Mark Duffield sem eftir tvö og hálft ár í Bestu deildinni hefur ákveðið að snúa aftur til Svíþjóðar. 18. ágúst 2026 09:42 „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Baldur Sigurðsson gat ekki orða bundist eftir frammistöðu Gylfa Þórs Sigurðssonar með Víkingi um helgina í 4-2 sigrinum gegn FH í Kaplakrika. Gylfi skoraði þar frábært mark eftir góðan sprett, eftir gríðarlegt leikjaálag að undanförnu. 18. ágúst 2026 09:29 „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Það voru blandaðar tilfinningar í huga Hallgríms Jónassonar, þjálfara KA, eftir 4-4 jafntefli liðsins gegn Val í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. Heilt yfir var þó Hallgrímur frekar jákvæðari en vonsvikinn með eitt stig. 17. ágúst 2026 20:59 Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Valur og KA skildu jöfn, 4-4, í kaflaskiptum leik liðanna í 19. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á N1-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. 17. ágúst 2026 19:54 Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Sjá meira
Kveðja Bjarna með miklum söknuði Valsmenn hafa nú staðfest brotthvarf Bjarna Mark Duffield sem eftir tvö og hálft ár í Bestu deildinni hefur ákveðið að snúa aftur til Svíþjóðar. 18. ágúst 2026 09:42
„Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Baldur Sigurðsson gat ekki orða bundist eftir frammistöðu Gylfa Þórs Sigurðssonar með Víkingi um helgina í 4-2 sigrinum gegn FH í Kaplakrika. Gylfi skoraði þar frábært mark eftir góðan sprett, eftir gríðarlegt leikjaálag að undanförnu. 18. ágúst 2026 09:29
„Kýs að líta á glasið hálffullt“ Það voru blandaðar tilfinningar í huga Hallgríms Jónassonar, þjálfara KA, eftir 4-4 jafntefli liðsins gegn Val í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. Heilt yfir var þó Hallgrímur frekar jákvæðari en vonsvikinn með eitt stig. 17. ágúst 2026 20:59
Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Valur og KA skildu jöfn, 4-4, í kaflaskiptum leik liðanna í 19. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á N1-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. 17. ágúst 2026 19:54