Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Sindri Sverrisson skrifar 18. ágúst 2026 14:48 Keflvíkingar fjölmenntu á Laugardalsvöll fyrir tæpu ári og áttu góðan dag þegar Keflavík tryggði sig upp í Bestu deildina. Færri hafa hins vegar mætt á leiki liðsins í sumar. vísir/Viktor Freyr Keflvíkingar hafa komið öllum á óvart með árangri sínum í Bestu deildinni í sumar en þó virðist vanta upp á áhuga heimamanna á að sjá leiki liðsins. Sérfræðingar Stúkunnar furðuðu sig á þessu.
Keflavík vann 2-0 sigur gegn Þór á Akureyri um helgina og hefur þar með náð í 25 stig og er í 6. sæti, í harðri baráttu um sæti í efri hlutanum fyrir skiptingu deildarinnar eftir þrjár umferðir. Þó að enn séu samtals átta umferðir eftir af mótinu eru Keflvíkingar nánast búnir að tryggja sér áframhaldandi veru í Bestu deildinni, þvert á allar spár, en einhverra hluta vegna endurspeglar mæting áhorfenda ekki þá staðreynd að hér sé um að ræða spútniklið sumarsins. „Þetta er skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár en mætingin á leiki er búin að vera… Það eru tveir leikir í sumar þar sem mætingin í Keflavík hefur farið yfir 500. Meðaltalið er bara svona 400-450. Þannig að Keflvíkingar, mætið á leikina og styðjið liðið,“ sagði Baldur Sigurðsson í Stúkunni á Sýn Sport Ísland, en brot úr þættinum má sjá hér að neðan. Klippa: Stúkan - Umræða um mætingu í Keflavík Næsti leikur Keflavíkur er heimaleikur við ÍBV á sunnudaginn klukkan 17 og þar vill Baldur sjá stuðning á borð við þann sem hann man sjálfur eftir sem leikmaður Keflavíkur. Kjartan Atli Kjartansson benti jafnframt á að tímabilið hefði ekki verið neinn dans á rósum fyrir Keflvíkinga: „Áttum okkur aðeins á hvaða ólgusjó þetta Keflavíkurlið hefur farið í gegnum. Þeim var ekki spáð góðu gengi, hvorki hér né annars staðar, en náðu einhverju flugi og kemistríu. Missa svo Davíð Helga [Aronsson til Lyngby] sem var einn þeirra besti maður. Það verður eitthvað uppþot á æfingu, á milli [Alpha] Conteh og [Muhamed] Alghoul, sem var afgreitt og virðist ekki hafa haft nein áhrif á liðið. Þeir lenda í alls konar áföllum en standast þau og halda sér alltaf á floti.“
Besta deild karla Keflavík ÍF Stúkan Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira