Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Áróra L Davíðsdóttir skrifar 18. ágúst 2026 14:45 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Halldór Benjamín Þorbergsson, einn forsprakka samtakanna Áfram Ísland. Samsett Áfram Ísland stendur við útreikninga á að kostnaður Íslands að Evrópusambandinu muni hlaupa á fimmtíu milljörðum króna. Samtökin vísa á bug fullyrðingum forsætisráðherra um að upphæðin sé „ekki nándar nærri því sem gæti komið út úr þessum viðræðum.“
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samtökunum Áfram Ísland sem hvetja landsmenn til þess að segja „nei“ í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst næstkomandi. Auglýsing þar sem kjósendur eru spurðir hvort þeir vilji senda fimmtíu milljarða árlega til ESB hefur verið áberandi síðustu daga, meðal annars á auglýsingaskiltum á höfuðborgarsvæðinu. Í hádegisfréttum á Bylgjunni sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra meðal annars að umræðan um fimmtíu milljarðana hafa ratað inn á fundi til sín og að umræðan væri ótímabær. „Þetta er auðvitað ekki tala sem nándar nærri því sem að gæti komið út úr þessum viðræðum. Þetta er tala sem er kannski nærri því að vera 7-8 milljarðar, en engu að síður tala sem mun ekkert liggja fyrir fyrr en löngu eftir að aðildarviðræðum er lokið,“ sagði Kristrún í hádeginu. Áfram Ísland stendur við „varfærna útreikninga“ Áfram Ísland vísar á bug þessum fullyrðingum forsætisráðherrans og segist standa við „varfærna útreikninga“ um kostnað við Evrópusambandið. Mikilvægt sé að horfa á heildargjöld Íslands til ESB þar sem Ísland muni hafa lítið um það að segja hvernig fjármunum er ráðstafað til Íslands. Í júní síðastliðnum hafi framkvæmdastjórn Evrópusambandsins birt frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2026. Í frumvarpinu megi sjá skýrt að hvert ríki greiði að meðaltali eitt prósent vergra þjóðartekna til sambandsins. Lögin hafi ekki verið samþykkt á Evrópuþinginu. „Miðað við fyrirliggjandi drög að fjárlagaramma ESB fyrir árin 2028-2035 fara gjöld til ESB hækkandi á næstu árum og gætu numið að hámarki 93 milljörðum króna á ári miðað við samskonar aðferðarfræði,“ segir í fréttatilkynningu Áfram Ísland.Áfram Ísland „Sjá má skýrt að hvert ríki greiðir að meðaltali rétt tæplega 1 prósent og kostnaðurinn hleypur á bilinu 0,9-1,3 prósent af vergum þjóðartekjum,“ segir í tilkynningunni. Vergar þjóðartekjur Íslands hafi verið um 4.944 milljarðar króna samkvæmt Hagstofu Íslands og megi áætla að þær verði 5.394 milljarðar króna í ár samkvæmt spá Seðlabankans. „Miðað við hlutfallið af þjóðartekjum sem ESB ríkin greiða að jafnaði til ESB í ár myndi Ísland því greiða um 52 milljarða króna,“ segir í tilkynningunni. Það samsvari kostnaði við alla 37 framhaldsskóla landsins eða öllum kostnaði ríkisins við barnabætur og fæðingarorlof í ár.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira