Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 19. ágúst 2026 21:30 Daníel Guðbjartsson er forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Aðsend Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa sett saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið, eins konar kort sem gefur nákvæmari mynd af breytileika í erfðaefni Íslendinga en áður hefur þekkst. Aðferðin greinir sex prósentum fleiri erfðabreytileika og hefur þegar leitt í ljós áður óþekktan breytileika sem margfaldar líkur á að greinast með Parkinsonsveiki fyrir sextugt.
Frá þessu er greint í grein sem birtist í dag í tímaritinu Nature, einu virtasta vísindariti heims. Fyrstu höfundar greinarinnar eru þeir Guillaume Holley og Hannes Pétur Eggertsson, vísindamenn hjá Íslenskri erfðagreiningu. Skýrara kort af erfðum mannsins Íslensku fjölerfðamengi má líkja við ítarlegu korti af erfðaefni þjóðarinnar. Í stað einnar raðar erfðaefnis sýnir kortið margar raðir og hvernig þær tengjast hver annarri. Þannig gefur það skýrari mynd af fjölbreytni í erfðaefni einstaklinga. Viðmiðunarerfðamengi mannsins var fyrst sett saman árið 2001 og hefur síðan gegnt lykilhlutverki í erfðafræðirannsóknum. Slík erfðamengi geta aðeins táknað eina litningaröð sem er samsett af handahófi úr mörgum raðgreindum litningaröðum. Þetta handahófskennda val skapar í sumum tilfellum bjaga eða skekkju í greiningum. Fjölerfðamengi hafa verið gefin út til að minnka þennan bjaga með því að tákna margar mismunandi raðir og erfðabreytileika milli þeirra. Fjölerfðamengi hafa þó ekki verið notuð í miklum mæli, meðal annars vegna þess að eldri aðferðir sem nota viðmiðunarerfðamengi eru einfaldari í notkun og hraðvirkari. Breytileiki fannst sem gerir Parkinsons sjöfalt líklegra Íslenska fjölerfðamengið er búið til úr 788 litningaröðum, þar af eru 698 íslenskar litningaraðir, og inniheldur yfir 50 milljón erfðabreytileika. Enginn fyrri viðmiðunarerfðamengi eða -fjölerfðamengi hafa verið samsett með erfðaefni frá Íslendingum. Vísindamenn ÍE þróuðu nýjar aðferðir til að nota fjölerfðamengið sem viðmið í stað hins hefðbundna viðmiðunarerfðamengis. Nýju aðferðirnar voru bæði hraðvirkari og báru kennsl á 6% fleiri erfðabreytileika í Íslendingum en fyrri aðferðir. Kanna má áhrif þessara erfðabreytileika á sjúkdómaáhættu. Sem dæmi fannst breytileiki í geninu GBA1í Íslendingum og Bretum sem fannst ekki með fyrri aðferðum. Íslenskir arfberar hans eru meira en sjöfalt líklegri en aðrir til að greinast með Parkinsons sjúkdóm fyrir sextugt. Eykur skilning á orsökum sjúkdóma Í tilkynningu er haft eftir Daníel Guðbjartssyni forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar að aukin þekking á erfðabreytileika geri okkur kleift að greina einstaklinga í aukinni hættu. „Með íslenska fjölerfðamenginu fáum við nákvæmara kort af erfðaefni Íslendinga en áður. Það gerir okkur kleift að finna erfðabreytileika sem eldri aðferðir greindu ekki og þannig kanna betur hvernig þeir tengjast sjúkdómum. Markmiðið er að nýta betri erfðaupplýsingar til að auka skilning okkar á orsökum sjúkdóma og skapa þannig sterkari grunn fyrir frekari rannsóknir,“ segir hann.
Íslensk erfðagreining Heilbrigðismál Tækni Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira