Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson skrifar 20. ágúst 2026 08:31 „Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri segir að það sem réttlæti hækkun stýrivaxta í dag sé fyrst og fremst aukin verðbólga, sem sé drifin áfram af launahækkunum á opinberum markaði, skattahækkunum, hækkunum á ýmsum opinberum gjöldum og hækkunum á ýmsum innfluttum vörum vegna stríðsátaka.“ Sjá visir.is Og: „Verðbólga er að mestu innflutt hér á landi, segir breskur hagfræðingur, og því séu stýrivextir ekki rétta tólið til að draga úr henni. Nær væri að stjórnvöld beittu hnitmiðuðum aðgerðum.“ Sjá ruv.is Með fullri virðingu fyrir þessum ágætu hagfræðingum langar mig til að sýna lesendum eftirfarandi mynd: Nei, verðbólga á Íslandi (5,3%) er ekki „drifin áfram… af hækkunum á ýmsum innfluttum vörum“ eða „að mestu leyti innflutt“. Hún er að mestu leyti drifin áfram af húsnæðiskostnaði: 1,7 prósentustig af 5,3. Og húsnæðiskostnaður er drifinn áfram af leiguverði og skorti á leiguhúsnæði. Leiguverðsvísitalan hefur hækkað um 4,7% síðasta árið og er, blessunarlega, að sjá ofurlítið minni hækkanir en fyrir ári síðan. En á meðan þessi þrýstingur er á leiguverð mun húsnæðisliðurinn í verðbólgumælingunni vera með mikilvægustu ástæðum þess hví verðbólga mælist há. Hvaðan er svo restin af verðbólgu að koma? Aðallega frá opinberri þjónustu (1,4 prósentustig, það eru gjaldskrár- og skattahækkanirnar sem komu inn um áramótin, sjá stökkið frá desember 2025 til janúar 2026) og frá þjónustu einkaaðila (1,0 prósentustig). Þessar hækkanir eru, rétt og Ásgeir bendir réttilega á, drifnar áfram af opinberum gjöldum og launahækkunum. Þær eru samt minni en áhrif húsnæðisliðarins. Bæði Ásgeir og Jaya Sood virðast gleyma að tala um áhrif leiguhúsnæðisskorts á leiguverð og þar með á verðbólgu. Einu sinni enn: ef það er ekki nægilega mikið byggt af leiguhúsnæði endar leigu- og fasteignaverð á því að hækka. Það leiðir til harðari launakrafna sem aftur leiðir til hærri launakostnaðar. Sá launakostnaður endar beint í hærra þjónustuverði. Fyrstu-umferðar áhrifin og grundvallarvandamálið er leiguhúsnæðisskortur. Annarrar-umferðar áhrifin eru launahækkanir og verðbólga vegna þeirra. Að kenna innfluttum vörum um háa verðbólgu á Íslandi er rangt. Byrjið að horfa á vandann eins og hann er en ekki eins og þið viljið að hann sé. Eða eins og Ásgeir orðaði það sjálfur en þó með aðra lausn í huga: „Það sem ég er að benda á er að ef [verkalýðsfélög og atvinnurekendur] vilja sjá lægri vexti, þá séu ákveðnir hlutir sem þurfa að gerast.“ Ásgeir var að tala um hóflegar launahækkanir. Það er annarrar-umferðar vandinn. Að mínu mati er grundvallarvandinn leiguhúsnæðisskortur. Og, nei, vaxtahækkun leiðir ekki til aukins framboðs af leiguhúsnæði. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Margeirsson Seðlabankinn Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
„
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar