Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. ágúst 2026 08:46 Meðferðin með intismeran og Keytruda hefst eftir að æxlið hefur verið fjarlægt. Batalíkur eru góðar ef meinið finnst snemma en mun verri þegar það hefur náð að dreifa sér. Getty Rannsóknir benda til þess að ný meðferð við sortuæxlum dragi verulega úr líkunum á því að meinið snúi aftur eða dreifi sér. Tilkynnt var um niðurstöðurnar í gær en engar tölulegar upplýsingar fylgdu. Þrátt fyrir það hafa hlutabréf í lyfjafyrirtækinu Moderna hækkað um 170 prósent í kjölfarið.
Moderna, sem komst í heimsfréttirnar í tengslum við bóluefni fyrirtækisins gegn Covid-19, hefur þróað nýtt mRNA bóluefni gegn sortuæxlum. Bóluefnið er gefið samhliða meðferð með krabbameinslyfinu Keytruda frá Merck en samkvæmt tilkynningu fyrirtækjanna voru minni líkur á endurkomu og dreifingu meinsins hjá þeim sem fengu bæði bóluefnið og Keytruda en hjá þeim sem fengu aðeins Keytruda. Um 1.100 manns tóku þátt í rannsókninni, sem er á lokastigum, en eins og fyrr segir þá fylgdu engar frekari tölulegar upplýsingar tilkynningunni í gær. Ítarlegar niðurstöður verða kynntar á alþjóðlegri ráðstefnu. Umrætt bóluefni, intismeran, er búið til með því að greina erfðamengi viðkomandi krabbameinsæxlis til að bera kennsl á svokallaða „nýmótefnavaka“ (e. neoantigens), sem „kenna“ ónæmiskerfinu að ráðast gegn krabbameinsfrumunum. Ferlið við að búa til persónusniðið bóluefnið tekur um það bil sex vikur. Sérfræðingar hafa tekið niðurstöðunum fagnandi og segja ánægjulegt að þær vonir sem menn höfðu bundið við bóluefni gegn krabbameinum séu að rætast. Unnið er að rannsóknum á gagnsemi bóluefna gegn fleiri krabbameinum, til að mynda í lungum og nýrum. Á árunum 2020 til 2024 greindust 58 einstaklingar árlega með sortuæxli á Íslandi, að meðaltali; 31 kona og 27 karlar. Meðalfjöldi látinna var ellefu. Meðalaldur við greiningu var 52 ár hjá konum og 60 ár hjá körlum.
Vísindi Tækni Krabbamein Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira