Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson skrifar 20. ágúst 2026 08:45 Fyrir síðustu þingkosningar sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra að lækkun vaxta og verðbólgu væri pólitísk ákvörðun. Hún sagðist vera með plan og sleggju sem hún lofaði að nota til þess að negla þetta niður. Nú er ljóst að hvorki planið né sleggjan virkaði. Einnig liggur fyrir að ef lækkun vaxta og verðbólgu er einföld pólitísk ákvörðun hefur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tekið rangar ákvarðanir. Því er skiljanlegt að ríkisstjórnin sé búin að setja plan Kristrúnar á ís, grafa sleggjuna í jörð og leiti logandi ljósi að nýju plani. Nýja planið er að ríkisstjórnin þurfi ekki að taka pólitíska ákvörðun. Þess í stað er þjóðinni stillt upp við vegg og sagt að velja á milli Kristrúnarsleggjunnar og ESB-sleggjunnar. Þjóðin fær að ákveða það sem ríkisstjórnin getur ekki ákveðið sjálf. Ábyrgðarleysi og orðin tóm er líklega það besta sem lýsir tíð þessarar ríkisstjórnar. Miklu lofað, lítið gert og flest öðrum að kenna. Það er þörf á ríkisstjórn sem er reiðubúin til þess að taka ábyrgð. Ríkisstjórn sem setur lífskjör í forgang. Sem setur það í forgang að stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta samhliða stöðugleika á vinnumarkaði. Ríkisstjórn sem talar ekki bara um plön heldur framkvæmir þau. Á meðan þessi verkefni bíða er ábyrgðarleysi að setja alla krafta stjórnvalda í aðildarviðræður við ESB næstu árin. Við getum nýtt atkvæðið 29. ágúst til að senda ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur skýr skilaboð um hver forgangsröðunin eigi að vera. Að hún á að setja lífskjör í forgang og standa við stóru orðin. Að nú sé tími til að hætta að tala og láta verkin gera það. Það gerum við með því að setja X við Nei. Höfundur er formaður UVG og stjórnarmeðlimur í Ung gegn ESB - aðild. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Fyrir síðustu þingkosningar sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra að lækkun vaxta og verðbólgu væri pólitísk ákvörðun. Hún sagðist vera með plan og sleggju sem hún lofaði að nota til þess að negla þetta niður. Nú er ljóst að hvorki planið né sleggjan virkaði. Einnig liggur fyrir að ef lækkun vaxta og verðbólgu er einföld pólitísk ákvörðun hefur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tekið rangar ákvarðanir. Því er skiljanlegt að ríkisstjórnin sé búin að setja plan Kristrúnar á ís, grafa sleggjuna í jörð og leiti logandi ljósi að nýju plani. Nýja planið er að ríkisstjórnin þurfi ekki að taka pólitíska ákvörðun. Þess í stað er þjóðinni stillt upp við vegg og sagt að velja á milli Kristrúnarsleggjunnar og ESB-sleggjunnar. Þjóðin fær að ákveða það sem ríkisstjórnin getur ekki ákveðið sjálf. Ábyrgðarleysi og orðin tóm er líklega það besta sem lýsir tíð þessarar ríkisstjórnar. Miklu lofað, lítið gert og flest öðrum að kenna. Það er þörf á ríkisstjórn sem er reiðubúin til þess að taka ábyrgð. Ríkisstjórn sem setur lífskjör í forgang. Sem setur það í forgang að stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta samhliða stöðugleika á vinnumarkaði. Ríkisstjórn sem talar ekki bara um plön heldur framkvæmir þau. Á meðan þessi verkefni bíða er ábyrgðarleysi að setja alla krafta stjórnvalda í aðildarviðræður við ESB næstu árin. Við getum nýtt atkvæðið 29. ágúst til að senda ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur skýr skilaboð um hver forgangsröðunin eigi að vera. Að hún á að setja lífskjör í forgang og standa við stóru orðin. Að nú sé tími til að hætta að tala og láta verkin gera það. Það gerum við með því að setja X við Nei. Höfundur er formaður UVG og stjórnarmeðlimur í Ung gegn ESB - aðild.
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun