„Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Andri Broddason skrifar 20. ágúst 2026 11:33 Sölvi Geir Ottesen er bjartsýnn fyrir viðureign Borac Banja Luka í kvöld. vísir/Diego Í kvöld tekur Víkingur á móti Borac Banja Luka frá Bosníu og Hersegóvínu í úrslitaviðureign í umspili Sambandsdeildar Evrópu. Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkings er klár í slaginn gegn sterku bosnísku liði. „
Þetta er risaeinvígi og mikið undir. Við gerum okkur alveg grein fyrir því og erum peppaðir í að spila þennan leik.“ Nokkrir leikmenn Víkings hafa lent í meiðslum og verða ekki meira með á tímabilinu. Í Evrópuleik fyrr í sumar meiddust Óskar Borgþórsson og Tarik Ibrahimagic og verða þeir ekki meira með á tímabilinu. „Við höfum lent í skakkaföllum með leikmenn þar sem þeir lenda í leiðinlegum meiðslum. Við þurfum bara að díla við það. Þeir eru meiddir og við erum með aðra leikmenn sem koma í staðinn og við fókusum á þá leikmenn sem eru til staðar.“ Gunnar Vatnhamar er á förum frá Víkingum á sínu fjórða tímabiliÍvar/Vísir Gunnar Vatnhamar frá Færeyjum er að leika sitt fjórða tímabil með Víkingi á Íslandi. Hann verður þó á förum frá félaginu og gengur til liðs við Vejle sem leikur í dönsku B-deildinni. Vatnhamar mun ná að klára loka Evrópuviðureignina en eftir seinni leik viðureignarinnar í Bosníu mun hann fara til Danmerkur. „Það er gott tækifæri fyrir mig að spila í Danmörku, ég hef ekki gert það áður. Þetta er nýr kafli og það er kominn tími til að prófa eitthvað nýtt.“ Eftir að hafa leikið fjögur tímabil og orðið Íslands- og bikarmeistari með Víkingi hefur honum liðið vel hér á landi. Hann ætlar enn að fylgjast með Víkingunum þrátt fyrir að hann sé fluttur til Danmerkur. „Mér þykir mjög vænt um þetta félag og ég mun fylgjast með því það sem eftir er ævi minnar. Nú styð ég tvö félög og í framtíðinni kemur þriðja félagið: Víking frá Færeyjum, Víking frá Íslandi og nú Vejle í Danmörku.“ Síðasti leikur Gunnars Vatnhamar í Bestu deildinni verður gegn Val en liðin mætast á sunnudaginn. Viðtalið má sjá í heild í spilaranum hér að neðan:
Besta deild karla Sambandsdeild Evrópu Víkingur Reykjavík Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Eistland - Ísland | Mikið í húfi í toppslag í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Fótbolti Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Fótbolti Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Fótbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Tók óvænt þátt eftir að mamma skráði hana Sport „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Handbolti Fleiri fréttir Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Sjá meira