„Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ Smári Jökull Jónsson skrifar 20. ágúst 2026 16:16 Pétur G. Markan tók til starfa sem bæjarstjóri Grindavíkur fyrr í sumar. Grindavíkurbær Grunnskólastarf í Grindavík hefst á nýjan leik í næstu viku og segir bæjarstjórinn Pétur G. Markan það mikinn sigur fyrir bæjarbúa að skólastarf sé að fara af stað. Hann telur að vegna mikillar áherslu á öryggi sé starfsfólk skólans jafnvel betur undirbúið en starfsfólk annarra skóla.
Grunnskólastarf í Grindavík hefst í næstu viku og er starfsfólk skólans mætt í vinnu og byrjað að undirbúa skólastarfið. Ekkert skólastarf hefur verið í bænum frá því í nóvembermánuði 203 og hefur mikil vinna átt sér stað við að tryggja öryggi nemenda og starfsfólks. Rúmlega tuttugu nemendur eru skráðir í skólann í vetur á yngsta-, mið- og elsta stigi. Mikil áhersla hefur verið lögð á öryggismál að sögn bæjarstjórans Péturs G. Markan. „Vinnan hefur farið þannig fram að við höfum verið í miklu og góðu samráði við menntamálaráðuneytið. Við höfum síðan verið að vinna nýtt áhættumat í allt sumar með okkar færustu sérfræingum og aukinni þekkingu heimamanna. Við byggjum á ansi góðum grunni þegar við hefjum skólastarfið sem er mikill sigur fyrir okkur,“ sagði Pétur Markan í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Gefur betri sýn og betri tilfinningu fyrir raunaðstæðum“ Hann segir þó engan afslátt vera gefin af öryggi í bænum. „Hitt heldur. Það er verið að vinna nýtt áhættumat sem að gefur betri sýn og betri tilfinningu fyrir raunaðstæðum í Grindavík sem þýðir í raun og veru að við erum öruggari fyrir vikið.“ „Svo er þetta líka vinna sem er að mörgu leyti söguleg, hún hefur ekki verið unnin með þessum hætti áður. Þannig að allt samantekið þá hefur okkur unnist afskaplega vel í sumar og byrjum mjög brött og örugg skólastarfið núna í haust.“ Allir skólar landsins með rýmingaráætlanir Ekki hefur gosið í grennd við Grindavík síðan í júlímánuði á síðasta ári á sér enn stað landris og kvikusöfnun við Svartsengi og líklegasta sviðsmyndin er enn sú að kvikuhlaup verði á Sundhnúksgígaröðinni. Pétur segir allar rýmingaráætlanir uppfærðar og til staðar. „Það eru allir grunnskólar landsins og allar stofnanir landsins með rýmingaráætlanir og okkar eru uppfærðar miðað við aðstæður. Ég held að þar sem við erum náttúrulega að fara í gegnum þessa vinnu þá séum við jafnvel betur undirbúin en margur hver, af því að þetta er mikið áherslumál hjá okkur. Þannig að það er allt klárt.“
Grindavík Grunnskólar Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira