Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 20. ágúst 2026 18:36 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar. Vísir/Vilhelm Samfylkingin mælist á ný stærsti flokkurinn á Alþingi í nýrri könnun Maskínu. Flokkurinn bætir mestu við sig milli mánaða en samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna stendur nánast í stað.
Samfylkingin mælist með 26,2 prósenta fylgi og bætir við sig 1,8 prósentustigum frá könnun Maskínu í júlí. Sjálfstæðisflokkurinn, sem mældist stærstur í síðasta mánuði, er skammt undan með 25,1 prósent. Fylgi flokksins eykst um 0,1 prósentustig. Munurinn á flokkunum tveimur er innan vikmarka. Miðflokkurinn mælist þriðji með 12,7 prósenta fylgi og tapar 0,7 prósentustigum. Viðreisn fær 11,5 prósent og lækkar um 1,2 stig, mest allra flokka. Framsóknarflokkurinn bætir hins vegar við sig 1,2 prósentustigum og mælist með 7,8 prósenta fylgi. Flokkur fólksins tapar 0,7 stigum og fær 5,2 prósent. Vinstri græn lækka einnig um 0,7 stig og mælast með 4,2 prósent. Sósíalistaflokkurinn lækkar um 0,1 stig, í 3,9 prósent, en Píratar bæta við sig 0,4 stigum og mælast með 3,5 prósent. Ríkisstjórnarflokkarnir með 42,9 prósent Þróunin er ólík hjá ríkisstjórnarflokkunum þremur. Samfylkingin bætir við sig 1,8 prósentustigum en Viðreisn tapar 1,2 stigum og Flokkur fólksins 0,7 stigum. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna lækkar því úr 43 prósentum í júlí í 42,9 prósent í ágúst. Flokkarnir fengu samanlagt 50,4 prósent atkvæða í alþingiskosningunum 2024 og hafa því tapað 7,5 prósentustigum frá kosningum. Niðurstöður ágústmánaðar byggjast á tveimur könnunum sem gerðar voru frá 22. til 29. júlí og frá 7. til 11. ágúst. Alls tóku 3.172 svarendur afstöðu til flokka.
Skoðanakannanir Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Miðflokkurinn Viðreisn Flokkur fólksins Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Sósíalistaflokkurinn Vinstri græn Píratar Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira